Síminn hf. – Birting grunnlýsingar


Síminn hf., kt. 460207-0880, Ármúla 25, 108 Reykjavík hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma víxla. Grunnlýsingin er dagsett 12. maí 2023 og hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Grunnlýsingin er gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins https://www.siminn.is/fjarfestar.

Nánari upplýsingar um Símann hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu og á vefsíðu félagsins. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Nánari upplýsingar veita:
Óskar Hauksson, fjármálastjóri, oskarh@siminn.is.
Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, helgith@siminn.is.


Viðhengi



Attachments

Síminn hf. - Grunnlýsing Símans hf. 12.05.2023