Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 25. viku 2023 keypti Síminn hf. 7.500.000 eigin hluti að kaupverði 76.275.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
19.6.202311:261.500.00010,1015.150.00084.248.667
20.6.202314:461.500.00010,2015.300.00085.748.667
21.6.202312:341.500.00010,2015.300.00087.248.667
22.6.202309:381.500.00010,2015.300.00088.748.667
23.6.202309:491.500.00010,1515.225.00090.248.667
  7.500.000 76.275.00090.248.667


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 21. mars 2023. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.000 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2024, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 82.748.667 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 90.248.667 eða sem nemur 3,25% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 78.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,81% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 846.750.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.