Síminn hf. – Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 9. mars 2023 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 277.500.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun, með það að markmiði að lækka hlutafé félagsins og gera félaginu kleift að standa við skuldbindingar sínar skv. kaupréttarsamningum við starfsmenn.

Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2024, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar hefur stjórn Símans hf. tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin hlutum. Endurkaupin nú munu nema 1.000 milljónum króna að kaupverði

Arctica Finance hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 1.817.740 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í júní 2023. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast miðvikudaginn 19. júlí 2023.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.