Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir


Í gær 28. ágúst 2023 keypti Síminn hf. 1.500.000 eigin hluti í tengslum við endurkaupaáætlun Símans hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 18. júlí 2023. Með viðskiptunum fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. yfir 5% af heildarfjölda hluta.

Síminn hf. átti 138.554.907 eigin hluti fyrir viðskiptin í gær en á að þeim loknum 140.054.907 eða sem nemur 5,047% af útgefnum hlutum í félaginu.

Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr. 20/2021 upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.