Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs fyrstu sex mánaða ársins 2023 þann 7. september - Rafrænn kynningarfundur 8. september


Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrstu sex mánaða ársins 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 7. september nk. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 8. september nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins.