Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023


Helstu niðurstöður eru:

  • Rekstrartekjur námu 5.497 m.kr.
    • Þar af námu leigutekjur 4.691 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.827 m.kr.
  • Heildarhagnaður nam 8.769 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 2.136 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 132.572 m.kr.
  • Bókfært virði eigna til eigin nota nam 6.025 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 9.788 m.kr.
  • Handbært fé nam 1.043 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 74.004 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall nam 35,6%.
  • Hagnaður á hlut var 2,15 kr.
  • Virðisútleiguhlutfall var 93,8%
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,03%
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 8,93%

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 7. september 2023.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.

Rekstur félagsins

Rekstur félagsins gekk vel á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 og var afkoman umfram uppfærðar áætlanir stjórnenda félagsins. Það má fyrst og fremst rekja til endurmats viðskiptakrafna. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 námu 5.497 m.kr. Þar af voru leigutekjur 4.691 m.kr. Rekstrarkostnaður nam 1.851 m.kr. og viðsnúningur á áður færðri virðisrýrnun viðskiptakrafna leiddi til jákvæðrar virðisrýrnunar að fjárhæð 181 m.kr. en stjórn félagsins hefur tekið afstöðu til endurmats viðskiptakrafna að teknu tilliti til uppgjöra á leiguskuldbindingum sem stöfuðu af áhrifum Covid-19 á leigutaka. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.827 m.kr. og jókst um rúmlega 24% á milli ára. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 9.178 m.kr., hagnaður samstæðunnar nam 7.342 m.kr. Önnur heildarafkoma nam 1.427 m.kr. Heildarhagnaður samstæðunnar á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 nam 8.769 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum) nam 78,4% á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 samanborið við 73,9% fyrir sama tímabil 2022.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem voru um 9.788 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins. Stærstu liðirnir til hækkunar á virði fjárfestingareigna eru verðbólga, hækkun á markaðsleigu, uppfært virði byggingarheimilda og lægri ávöxtunarkrafa eiginfjár. Stærsti liður til lækkunar er að framtíðarvöxtur leigutekna er tekinn út. 

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 141.979 m.kr. þann 30. júní 2023. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 132.572 m.kr. sem skiptast í fjárfestingareignir í útleigu að fjárhæð 124.488 m.kr., leigueignir 2.766 m.kr., fjárfestingareignir í þróun 1.636 m.kr., byggingarréttir og lóðir 3.669 m.kr. og fyrirframgreidd gatnagerðargjöld að fjárhæð 13 m.kr. Eignir til eigin nota námu 6.025 m.kr. og fasteignir í þróun 675 m.kr. Eigið fé félagsins nam 50.513 m.kr. í lok tímabilsins og var eiginfjárhlutfall 35,6%. Á aðalfundi félagsins þann 30. mars 2023 var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2022 að fjárhæð 2.000 m.kr. og var hann greiddur þann 12. apríl 2023.

Heildarskuldir félagsins námu 91.465 m.kr. þann 30. júní 2023. Þar af voru vaxtaberandi skuldir 74.004 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 12.872 m.kr. Veðhlutfall félagsins var 54,4%.

Virðisútleiguhlutfall

Virðisútleiguhlutfall félagsins var 93,8% í lok tímabilsins en var 95,7% um áramótin. Á öðrum ársfjórðungi flutti Landsbankinn höfuðstöðvar sínar og skilaði samhliða því húsnæði sem bankinn hafði verið með í langtímaleigu hjá félaginu sem hafði 1,7% áhrif til lækkunar á virðisútleiguhlutfalli.

Eignasafn félagsins

Kauptilboð félagsins í Hafnarstræti 7 hefur verið samþykkt með fyrirvörum en um er að ræða 820 fermetra skrifstofu– og verslunarhúsnæði. Eftir kaupin á félagið allan reitinn sem afmarkast af  Pósthússtræti 2, Tryggvagötu 24-28 og Hafnarstræti 5-9.

Fasteignir innan samstæðunnar eru nú í kringum 110 talsins og telja rúmlega 318 þúsund útleigufermetra í rúmlega 600 leigueiningum. Heildarfjöldi leigutaka er tæplega 500. Helstu fasteignir félagsins á höfuðborgarsvæðinu eru Borgartún 21 og 21a, Borgartún 26, Suðurlandsbraut 8 og 10, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2 (Hótel 1919), Smáratorg 3 (Turninn), Smáratorg 1, Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær), Grjótháls 1-3 og Austurstræti 5, 6, 7 og 17. Helsta fasteign félagsins utan höfuðborgarsvæðisins er Glerártorg, Akureyri. Stærstu leigutakar félagsins eru Húsasmiðjan, Berjaya Hotels Iceland, Sýn, Össur, Bónus, Deloitte, Rúmfatalagerinn, Samkaup og Ríkiseignir.

Stærsti hluti fasteignasafns félagsins er skrifstofuhúsnæði eða um 40%. Næst koma verslunarhúsnæði 23%, lagerhúsnæði 13%, hótel 10%, heilsutengt húsnæði 6%, veitinga- og skemmtistaðir 3% og byggingarheimildir 3%.. Um 93% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 38% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 18% í miðbæ Reykjavíkur og 18% í Smáranum - Mjódd. 7% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af rúmlega 6% á Akureyri.

Horfur

Góður gangur hefur verið á rekstri félagsins það sem af er ári og er afkomuspá ársins hækkuð í annað sinn á þessu ári. Félagið væntir þess nú að EBITDA ársins verði á bilinu 7.500 – 7.800 m.kr. á föstu verðlagi út árið miðað við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í september 2023. Upphafleg EBITDA spá var upp á 6.690 – 6.970 mkr. m.v. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í janúar. Hækkunin stafar að mestu leyti af hærra verðlagi, viðsnúningi á áður færðri virðisrýrnun viðskiptakrafna, breytingum á samningum og nýjum eignum. Leiðrétt fyrir verðlagi og kaupum á nýjum fjárfestingareignum er um að ræða hækkun upp á u.þ.b. 450 – 500 m.kr. m.v. upphaflega spá.

Rafrænn kynningarfundur
Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 8. september 2023 klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Skráning á fundinn fer fram hér:

https://us02web.zoom.us/webinar/register/WN_hQnFRcl7T2uAKrPVij-2uA

Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.

Breytt fjárhagsdagatal

Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum:
                       
Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2023                                    15. nóvember 2023

Ársuppgjör 2023                                                                     15. febrúar 2024

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Vakin er athygli á breyttri dagsetningu á árshlutauppgjöri 3. ársfjórðungs 2023.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 820-8980

Viðhengi



Attachments

23.06.30 1H Árshlutaskýrsla 2023