Árshlutauppgjör: Afkoma Akureyrarbæjar nokkru betri en áætlun gerði ráð fyrir


Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta Akureyrarbæjar fyrri hluta ársins 2023 var neikvæð um 1.196,8 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarhalli yrði 1.802,4 milljónir króna á tímabilinu. Afkoma samstæðunnar fyrri hluta ársins var því nokkru betri en áætlun hafði gert ráð fyrir eða sem nemur 606 milljónum króna.

Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrri hluta ársins var neikvæð um 1.137,3 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarhalli yrði 1.889,5 milljónir á tímabilinu. Afkoma A-hluta er því 752,2 milljónum króna betri en áætlun hafði gert ráð fyrir.

Tekjur samstæðunnar voru samtals 16.242 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að tekjur yrðu 15.217 milljónir. Skatttekjur voru 8.417 milljónir króna sem er 465 milljónum umfram áætlun. Tekjur frá Jöfnunarsjóði voru 2.319 milljónir króna sem er 152 milljónum yfir áætlun. Aðrar tekjur voru 5.506 milljónir króna sem er 408 milljónum umfram áætlun. Tekjur tímabilsins eru því samtals 1.025 milljónum króna hærri en áætlun hafði gert ráð fyrir.

Rekstrargjöld samstæðunnar fyrir afskriftir voru samtals 14.637 milljónir króna sem er 576 milljónum yfir áætlun. Laun og launatengd gjöld voru 9.043 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 8.979 milljónum. Annar rekstrarkostnaður var 4.912 milljónir króna sem er 526 milljónum yfir áætlun. Fjármagnsgjöld, nettó, voru 1.693 milljónir króna sem er 52 milljónum undir áætlun. Afskriftir voru 1.107 milljónir samanborið við 1.205 milljónir í áætlun.

Samkvæmt sjóðsstreymi samstæðunnar var veltufé frá rekstri 1.746,5 milljónir eða 10,75% af tekjum. Fjárfestingahreyfingar voru 2.321 milljón og fjármögnunarhreyfingar neikvæðar um 141 milljón. Afborganir lána voru 701 milljón króna. Handbært fé var 2.945 milljónir króna í lok júní.

Fastafjármunir samstæðunnar voru 57.256 milljónir króna og veltufjármunir 6.984 milljónir. Eignir voru samtals 67.606 milljónir króna samanborið við 66.507 milljónir í árslok 2022. Eigið fé var 27.090 milljónir króna en var 28.290 milljónir um síðustu áramót. Langtímaskuldir og skuldbindingar voru 33.547 milljónir en voru 32.594 milljónir í lok síðasta árs. Skammtímaskuldir voru 6.970 milljónir króna en voru 5.623 milljónir um síðustu áramót.

Veltufjárhlutfall var 1,0 á móti 1,27 í lok síðasta árs. Eiginfjárhlutfall var 40,1% í lok júní.

Árshlutareikningurinn fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023 var lagður fram í bæjarráði í morgun. Árshlutauppgjörið er óendurskoðað en verður með könnunaráritun eftir fund bæjarstjórnar 19. september nk.

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs, í síma 460 1000.

Viðhengi



Attachments

Árshlutareikningur - Akureyrarbæjar 6 mán 2023_Bæjarráð