Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokknum LSS 39 0303 þann 11. október 2023. Uppgjör viðskipta fer fram 16. október 2023.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Jafnframt áskilur Lánasjóðurinn sér rétt til að selja meira en 10% ef eftirspurn er til staðar.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 3.260.000.000 á bilinu 3,87% - 4,00%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.080.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,93%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS 39 0303 fyrir ISK 100.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,93%. Samþykkt viðbót nemur ISK 20.000.000 af nafnvirði. Útistandandi fyrir voru ISK 18.087.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.100.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 19.187.600.000.

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949