Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 41. viku 2023 keypti Síminn hf. 7.500.000 eigin hluti að kaupverði 67.875.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
9.10.202311:101.500.0009,05013.575.000179.054.907
10.10.202309:571.500.0009,12513.687.500180.554.907
11.10.202310:441.500.0009,00013.500.000182.054.907
12.10.202309:341.500.0009,05013.575.000183.554.907
13.10.202309:391.500.0009,02513.537.500185.054.907
  7.500.000 67.875.000185.054.907


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 18. júlí 2023. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.000 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2024, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 177.554.907 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 185.054.907 eða sem nemur 6,67% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 79.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,86% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 778.312.500 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.