Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 26 1015 - RIKB 42 0217 - Skiptiútboð eða greiðsla með reiðufé


FlokkurRIKB 26 1015RIKB 42 0217
ISINIS0000034874IS0000033884
Gjalddagi15.10.202617.02.2042
Útboðsdagur26.01.202426.01.2024
Uppgjörsdagur31.01.202431.01.2024
10% viðbót30.01.202430.01.2024
   
UppkaupsflokkurRIKB 24 0415 
Uppkaupsverð (clean)98,5200 

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 24 0415.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.