Leiðrétting: Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 7. ágúst 2024. Uppgjör viðskipta fer fram 12. ágúst 2024.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 1.740.000.000 á bilinu 3,85% - 3,95%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.400.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,91%. Útistandandi fyrir voru ISK 28.502.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 29.902.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.220.000.000 á bilinu 3,42% - 3,50%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.220.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,50%. Útistandandi fyrir voru ISK 29.865.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 31.085.000.000.

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949