Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun


Samkvæmt 3.. mgr. 21.gr. laga um húsnæðismál  nr. 44/1998, með síðari breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004  um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir því á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 23. mars, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa er 4,30%.  Vaxtaálag vegna rekstrar er  0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70%

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verði óbreyttir. 

Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verða því 4,75%, á lán með uppgreiðsluálagi, en 5,00% á lán án uppgreiðsluálags.