Atorka Group - Samstæðureikningsskil fyrir árið 2005


Stjórn Atorku Group hf samþykkti á stjórnarfundi í dag, 30.mars 2007, samstæðureikning félagsins fyrir árið 2005 en um er að ræða endurgerð reikningsskil fyrir árið 2005.  Í áður birtum ársreikningi Atorku Group hf fyrir árið 2005, sem birtur var 20 febrúar 2006, kom fram í skýringu 11 að takist ekki að minnka eignarhlut félagsins í tilteknum fyrirtækjaverkefnum munu eignir, skuldir, tekjur og gjöld þessara félaga verð tekin inn í reikningsskil félagsins frá kaupdegi í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal nr. 27, samstæðureikningskil og aðgreind reikningsskil.  Þar sem eignarhlutur Atorku í þessum félögum hefur ekki minnkað þá hefur félagið endurgert reikningsskil sín fyrir árið 2005 til að uppfylla ofangreindar kröfur.  Það felur í sér að auk áður birts ársreiknings vegna ársins 2005  hefur félagið gert samstæðuársreikning vegna ársins 2005. Jafnframt er vakin athygli á því að samanburðartölur í samstæðuársreikningi 2006 eru í samræmi við þess endurgerðu samstæðureikningsskil ársins 2005. Samanburðartölur í móðurfélagsársreikningi fyrir árið 2006 eru þær sömu og í áður birtum ársreikningi 2005.  Áhrif þessara endurgerðu reikningsskila eru þau að hagnaður félagsins fyrir árið 2005 eru 2,3 milljónum króna lægri og eigið fé 195,5 milljónum króna hærra en kom fram í áður birtum ársreikningi fyrir árið 2005.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson í síma 840 6240


Pièces jointes

Atorka Group  - 12 2005 samstaeda.pdf
GlobeNewswire