Stjórnir BYRS sparisjóðs og Sparisjóðs Kópavogs, SPK hafa samþykkt að veita stjórnarformönnum þeirra umboð til að ganga til viðræðna um sameiningu sjóðanna. Það er mat stjórna fyrirtækjanna að með sameiningu yrði til betra og öflugra fjármálafyrirtæki sem komi viðskiptavinum, starfsfólki og stofnfjáreigendum til góða. Umhverfi sparisjóða sem og annarra fjármálastofnana tekur sífelldum breytingum. Það krefst aukinnar stærðar og arðsemi til að þeir standi sterkir gagnvart síharðnandi samkeppni. Sameiginlegur sjóður BYR og SPK yrði með 130 milljarða króna efnahag og því vel í stakk búinn til að takast á við krefjandi verkefni framtíðarinnar. BYR rekur nú 6 útibú í Reykjavík, Garðabæ og Hafnarfirði og SPK er með 3 útibú í Kópavogi. Með sameiningu fjölgar möguleikum til framþróunar og sóknar og til yrði fyrirtæki með mjög sterka markaðsstöðu í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Engin sérstök tímamörk eru sett í þessum viðræðum en ætlunin er að hraða vinnunni eins og kostur er og að niðurstaða fáist sem allra fyrst. Nánari upplýsingar: Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður BYRS, sími 824 0401 Birgir Ómar Haraldsson, stjórnarformaður SPK, sími 896 6070.
- Viðræður um sameiningu BYRS og SPK
| Source: Sparisjóður Kópavogs