- Skipulagsbreytingar hjá Promens


Í kjölfar fyrirtækjakaupa og samþættingar hjá félögum í eigu Promens hf. hefur
stjórn félagsins ákveðið nýtt skipurit fyrir samstæðuna sem tekur gildi 1.
júlí. Markmiðið með nýja skipuritinu er að gera félagið skilvirkari og betur í
stakk búið að stækka enn frekar á alþjóðavettvangi. 

Stærsta breytingin á skipulagi félagsins felst í því að Polimoon Group AS, sem
rekið hefur verið sem sjálfstæð eining innan Promens frá því félagið var keypt
í desember 2006, verður nú rekið sem hluti af Promens samstæðunni. 

Stjórn Promens og Arne Vraalsen sem verið hefur forstjóri Polimoon hafa komist
að samkomulagi um að hann láti af starfi forstjóra Polimoon 30. júní
næstkomandi en haldi áfram sem ráðgjafi hjá félaginu til ársloka 2007. 

Í nýju skipulagi eru megin afkomusvið Promens þrjú: Umbúðir (Packaging),
Hverfisteypa (Rotational molding) og Íhlutir (Components). Aukin áhersla verður
lögð á innkaup, framleiðni og gæðamál og munu þau heyra undir sérstakt svið.
Aðalskrifstofa Promens mun vera áfram á Íslandi en stoðdeild með
fjármálastjórnun, upplýsingatækni, innkaupum, framleiðni og gæðastýringu verður
komið á fót í Osló í Noregi. 

Eftirfarandi aðilar skipa nýja framkvæmdastjórn Promens:

Ragnhildur Geirsdóttir sem tók við starfi forstjóra Promens í janúar 2006  mun
áfram leiða samstæðuna. 

Fjármálastjóri samstæðunnar og yfirmaður upplýsingatækni verður Adrian Platt
sem verið hefur fjármálastjóri Polimoon frá árinu 2000. 

Framkvæmdastjóri innkaupasviðs (Sourcing) verður Jón Sigurðsson sem verið hefur
fjármálastjóri Promens frá stofnun 2005 og áður hjá Sæplast hf. frá 2004. 

Framkvæmdastjóri framleiðsluumbóta og gæðamála (Production Development and
Quality) verður Thor Audun Saga sem gengt hefur svipuðu starfi hjá Polimoon frá
árinu 2006. 

Framkvæmdastjóri hverfisteypusviðs (Rotational Moluding) verður Aart Fortanier
sem stýrt hefur hverfisteypuframleiðslu Promens í Evrópu síðan félagið keypti
Bonar Plastics árið 2005. 

Framkvæmdastjóri  íhlutasviðs (Components) verður Erik Feijen sem gengt hefur
því starfi hjá Polimoon frá árinu 2002. 

Framkvæmdastjóri umbúðasviðs (Packaging) verður Jeroen Hooft sem hefur verið
framkvæmdastjóri umbúðasviðs Polimoon á meginlandi Evrópu frá 2002. 

”Promens hefur vaxið hratt á síðustu misserum, sennilega hraðar en nokkuð annað
fyrirtæki í plastiðnaði. En við hyggjumst ekki láta staðar numið hér. Promens
hefur rétt hafið sína vegferð og í kjölfar þessara breytinga erum við komin með
stjórnskipulag og stjórnunarteymi sem mun leiða fyrirtækið á komandi misserum
og takast á við enn frekar vöxt og samþættingu.” segir Ragnhildur Geirsdóttir
forstjóri Promens. 

Nánari upplýsingar um framkvæmdastjórn Promens má sjá í meðfylgjandi viðhengi.

Upplýsingar um Promens:
Promens er leiðandi fyrirtæki í plastframleiðslu í heiminum með yfir 60
verksmiðjur í Evrópu, Norður Ameríku, Asíu og Afríku.  Fyrirtækið framleiðir
mikið úrval umbúða þ.m.t. neytenda-, efna-, lyfja- og matvælaumbúðir auk þess
að framleiða plastíhluti fyrir bíla-, þungavinnuvéla- og rafeindaiðnaðinn.
Verksmiðjur Promens nýta flestar framleiðsluaðferðir sem þekkjast innan
plastiðnaðarins í dag, s.s. sprautusteypu (injection molding), blástursmótun
(blowmolding) og vakúmmótun (thermoforming) auk þess að vera stærsti
framleiðandi herfisteyptra (rotomolded) plasteininga í heiminum í dag. 

Áætluð velta Promens á árinu 2007 er um 710 milljónir Evra og heildar fjöldi
starfsmanna er um 5800.  Helstu eigendur Promens eru fjárfestingafélagið Atorka
Group hf. og Landsbankinn. 

Um Atorku
Atorka Group er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem er skráð í OMX Nordic
Exchange á Íslandi. Atorka fjárfestir í traustum fyrirtækjum sem eru í
atvinnugreinum sem hafa sérstök tækifæri til vaxtar á heimsmarkaði. Í
fjárfestingum sínum leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur
með sterkt sjóðstreymi, sterkt stjórnendateymi, starfi við góð skilyrði til
verulegs innri og ytri vaxtar og hafi tækifæri til verðmætaaukningar. 


Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri Promens, +354 580
5550, rgeirsdottir@promens.is 
www.promens.com.

Pièces jointes

framkvmdastjorn promens.pdf
GlobeNewswire