Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. samþykkti í dag uppgjör félagsins fyrir fyrstu sex mánuði rekstrarársins. Þar kemur meðal annars fram eftirfarandi: • Hagnaður var á rekstrinum á tímabilinu að upphæð 1.116 milljónir króna. Er það mikil breyting frá í fyrra þegar tap var fyrstu sex mánuði ársins að upphæð 493 milljónir króna. • Heildartekjur félagsins voru 3.325 milljónir króna og lækkuðu um 1,4% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur fiskvinnslu jukust örlítið, eða um 2,2% en tekjur útgerðar jukust mun meira eða um tæplega 26%. Rekstrargjöld drógust saman um liðlega 7%. • Framlegð félagsins (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) nam 962 milljónum króna og jókst um 17,3% frá fyrra ári. Framlegðarhlutfall hækkaði úr 24,3% í fyrra í 28,9% í ár. • Veltufé frá rekstri nam 564 milljón króna og var 17% af rekstrartekjum, dróst saman um 35% frá sama tímabili í fyrra. • Afskriftir hækkuðu um 41 milljón króna frá fyrra ári og voru tæplega 212 milljónir króna. • Tekjur Hugins ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 434 milljónir króna en 297 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Framlegð félagsins á tímabilinu var 83 milljónir króna. Hagnaður félagsins eftir skatta nam 127 milljónum króna en gengishagnaður félagsins nam 136 milljónum króna. Tap félagsins var 286 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í hagnaði Hugins ehf. nam 61 milljón króna. • Tekjur About Fish ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 732 milljónir króna og framlegð þess tæplega 10 milljónir króna. Hagnaður félagsins eftir skatta nam 6 milljónum króna og var hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í þeim hagnaði tæplega 3 milljónir króna. • Niðurstaða fjármagnsliða félagsins var jákvæð um 530 milljón króna á fyrstu sex mánuðum 2007, þar af nam gengishagnaður langtímalána félagsins 670 milljónum króna. Á sama tímabili í fyrra voru fjármagnsliðir neikvæðir um 1.020 milljónir króna. • Reiknaður tekjuskattur á tímabilinu var 229 milljónir króna. • Félagið hefur hafið vinnu við rannsóknir á veiðum og atferli humars með það að markmiði að auka arðsemi við nýtingu hans. Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands með styrk úr AVS-sjóðnum. Rannsóknaverkefninu er ætlað að varpa ljósi á áhrif veiða á búsvæði humars og atferli hans. Fleiri rannsóknaverkefni eru fyrirhuguð, aðallega varðandi humar og þorsk. Enn sem komið er hefur lítill kostnaður fallið til vegna rannsóknaverkefnanna. • Ákveðið hefur verið að ráðast í byggingu frystigeymslu fyrir félagið og fyrirhugað er að hún verði tekin í notkun fyrir loðnuvertíð, í febrúar 2008. Heildarskuldir og skuldbindingar félagsins lækkuðu um 526 milljónir króna frá upphafi árs til júníloka og eru 6.236 milljónir króna. Nettóskuldir eru 3.823 milljónir króna en þær voru 4.558 milljónir króna í lok síðasta árs; drógust því saman um 735 milljónir króna. Eigið fé hækkaði frá áramótum um 665 milljónir króna og er 3.100 milljónir króna eða 33,2% af heildarefnahag. Hækkun varð á eigin fé á tímabilinu vegna hagnaðar ársins að upphæð 1.116 milljónir króna en lækkun kom hins vegar á móti að upphæð 451 milljón króna vegna útgreiðslu arðs. Reikningsskilaaðferðir Í fréttatilkynningu með uppgjöri 1. ársfjórðungs kom fram að 2007 væri fyrsta árið sem félagið færir reikningsskil sín í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Upptökudagur reikningsskilastaðlanna miðast við 1. janúar 2006 og hafa því reikningsskil fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2006 verið færð samkvæmt stöðlunum til samanburðar. Helstu áhrif IFRS á niðurstöðu reikningsskila tímabilsins 1. janúar - 30. júní 2006 eru eftirfarandi (í þús. kr): • Framlegð var 911.093 kr. en verður 820.235 kr. • Afkoma var (367.717) kr. en verður (493.211) kr. • Reiknaður tekjuskattur var 50.590 kr. (bakfærð skuldbinding) en verður 78.030 kr. • Heildareignir voru 8.774.498. kr. en verða 9.068.941. • Eigið fé var 1.494.020 kr. en verður 1.735.375 kr. • Tekjuskattsskuldbinding var 146.062 kr. en verður 199.149 kr. • Veltufé frá rekstri var 951.015 kr. en verður 861.507 kr. Helstu áhrif IFRS á niðurstöðu efnahagsreiknings í árslok 2006 eru eftirfarandi (í þús.kr.): • Heildareignir voru 8.904.005 kr. en verða 9.197.891 kr. • Eigið fé var 2.196.389 kr. en verður 2.435.647 kr. • Tekjuskattsskuldbinding var 292.306 kr. en verður 346.933 kr. • Heildarskuldir voru 6.707.616 kr. en verða 6.762.243 kr. 351 milljóna króna hagnaður á öðrum ársfjórðungi Á öðrum ársfjórðungi, þ.e. frá 1. apríl til 30. júní 2007, voru tekjur Vinnslustöðvarinnar 1.575 milljónir króna og rekstrargjöld 1.204 milljónir króna. Framlegð tímabilsins var því 371 milljónir króna eða 24% af tekjum. Hlutdeild félagsins í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 7,5 milljónum króna. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 152 milljónir króna og er það aðallega vegna styrkingar krónunnar á tímabilinu. Hagnaður tímabilsins var því 351 milljón króna. Á sama tímabili í fyrra var framlegð 410 milljónir króna og tap af rekstri 280 milljónir króna. Atburðir sem áttu sér stað að loknu rekstrartímabili Tilkynnt var með árshlutauppgjöri 1. ársfjórðungs að hluthafar, sem eiga samtals 50,04% hlut í Vinnslustöðinni hf., hefðu gert með sér samkomulag 16. apríl 2007 um stjórnun og rekstur félagsins. Af 37. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti leiðir að þeim var þar með skylt að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð innan fjögurra vikna. Í kjölfar yfirtökutilboðs yrði óskað eftir því við stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. að hlutabréf hennar yrðu afskráð úr kauphöllinni OMX Nordic Exchange. Slíkt tilboð var gert þann 9 maí. Þann 31. maí barst samkeppnistilboð í félagið og í kjölfarið framlengdist upphaflega yfirtökutilboðið til samræmis við samkeppnistilboðið. Þann 23. júlí næstkomandi renna bæði yfirtökutilboðin út. Rekstrarhorfur á árinu Rekstrarhorfur félagsins til skemmri og lengri tíma hafa versnað. Í fyrsta lagi hefur styrking krónunnar neikvæð áhrif á tekjur félagsins. Vonir standa hins vegar til þess að krónan veikist þegar vaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands hefst. Í öðru laga hefur skerðing á aflamarki í þorski veruleg áhrif á afkomu félagsins á næstu árum. Í þriðja lagi hefur afurðaverð verið hátt en er tekið að lækka í afurðum ýmissa tegunda svo sem karfa, ufsa, humars auk fiskimjöls. Frekari upplýsingar: Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri í símum 488 8004 og 897 9607
2007
| Source: Vinnslustöðin hf.