- Lýkur hagstæðri endurfjármögnun


Alfesca hefur lokið endurfjármögnun félagsins með alþjóðlegu sambankaláni upp á
280 milljónir evra. Nýja lánið styrkir fjárhagsstöðu Alfesca, myndar
sveigjanleika og skapar betri aðstöðu til þess að efla félagið og stækka það.
Árlegur sparnaður á samanburðargrundvelli vegna lægri fjármagnskostnaðar er
áætlaður um 1,5 milljón evra eða um 125 milljónir íslenskra króna. 

Kaupþing og franski bankinn Natixis voru umsjónaraðilar lánsins og sáu einnig
um að selja það til alþjóðlegra bankastofnana. Það er afar ánægjulegt fyrir
Alfesca að veruleg umframeftirspurn varð þegar lánið var boðið til sölu á
alþjóðlegum bankamarkaði og endurspeglar það sterka stöðu félagsins á
alþjóðavettvangi. 

Nýja lánið kom til á fjórða ársfjórðungi nýliðins reikningsárs en alls tóku tíu
bankastofnanir þátt í endurfjármögnuninni. Alfesca er með starfsemi í sex
löndum og allar tekjur félagsins verða til utan Íslands. 

Fyrr í þessum mánuði var aðsetur höfuðstöðva félagsins flutt í Hús
Verslunarinnar að Kringlunni 7, eftir að húsnæði þess í Hafnarfirði var selt. 

Nánari upplýsingar má fá hjá: 

Antony Hovanessian
Business Development Director
+33 (0) 5 58 56 74 74
ah@alfesca.com

		
Hrefnu Ingólfsdóttur
Forstöðum. samskiptasviðs
+354 477 7000
hi@alfesca.com
GlobeNewswire