Yfirtökutilboð Eyjamanna ehf. til hluthafa Vinnslustöðvarinnar hf. rann út 20. ágúst sl. Tilboðstímabil hafði þá staðið frá 13. maí sl., en því var framlengt í tvígang; í fyrra skiptið þann 4. júní sl. þegar lagt hafði verið fram samkeppnistilboð í félagið og í síðara skiptið þann 23. júlí sl. þegar samkeppnistilboðinu hafði verið framlengt. Á tilboðstímabilinu keypti Eyjamenn ehf. 143.830 hluti í Vinnslustöðinni hf. sem nemur 0,01% hlutafjár í félaginu. Þau viðskipti voru tilkynnt þann 24. júlí 2007 á fréttavef OMX Norrænu kauphallarinnar Íslandi. Þrettán hluthafar tóku yfirtökutilboði Eyjamanna ehf. Eyjamenn ehf. átti enga hluti í Vinnslustöðinni hf. fyrir viðskiptin. Eyjamenn ehf. og samstarfsaðilar eiga nú samtals 782.971.430 hluti í Vinnslustöðinni hf. eða rétt rúmlega 50% hlutafjár í félaginu. Kaupþing banki hf. var ráðgjafi Eyjamanna ehf. í tengslum við yfirtökutilboðið. Nánari upplýsingar veitir Sigurgeir B. Kristgeirsson í síma 897 9607.
- Niðurstaða yfirtökutilboðs Eyjamanna ehf.
| Source: Vinnslustöðin hf.