2007


Samson er eignarhaldsfélag og er tilgangur þess almenn fjárfestingastarfsemi og
skyldur rekstur.  Félagið er eigandi tveggja dótturfélaga og er því birtur
samstæðureikningur félagsins og dótturfélaga þess.  Auk móðurfélagsins eru í
samstæðunni félögin Samson Properties ehf. sem er fasteignafélag sem sérhæfir
sig í rekstri, þróun og fjárfestingum í fasteignum og fasteignatengdum
verkefnum í Evrópu.  Einnig er fjárfestingafélagið Ópera fjárfestingar ehf.
hluti af samstæðunni en það félag er eigandi að um 26% eignarhluta í
Fjárfestingarfélaginu Gretti hf. 

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla
og er það í fyrsta sinn sem samstæðan birtir reikning sinn með þeim hætti. 
Árshlutareikningar samstæðunnar hafa undanfarin ár verið gerðir í samræmi við
lög um ársreikninga og íslenskar reikningsskilavenjur.  Innleiðing alþjóðlegu
reikningsskilastaðlanna hafði óveruleg áhrif á fjárhagsstöðu samstæðunnar og
ekki voru gerðar breytingar á samanburðarfjárhæðum eigin fjár og afkomu
samstæðunnar eins og þær voru birtar samkvæmt íslenskum reikningsskilavenjum
fyrir árið 2006. 

Eignarhluti móðurfélagsins í Landsbanka Íslands hf. var 4.559 m.kr. að
nafnverði í lok tímabilsins og nam hann 41,37% af heildarhlutafé bankans. 
Markaðsverð eignarhlutans nam 173.700 m.kr. í lok tímabilsins en bókfært virði
hans er 73.081 m.kr. en beitt er hlutdeildaraðferð við bókun eignarhlutans. 
Gengi hlutafjár í Landsbanka Íslands hf. hækkaði um 43,8% á fyrri hluta ársins
2007. 

Tap félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2007 nam 3.209 m.kr.
samanborið við 12.184 m.kr. hagnað á sama tíma í fyrra.  Þar sem beitt er
hlutdeildaraðferð við að gera grein fyrir eignarhluta félagsins í Landsbanka
Íslands hf. færast einungis 10.912 m.kr. til tekna þó markaðsvirði eignarhluta
Samson ehf. hafi aukist um 52.885 m.kr. á tímabilinu.  Félagið færir
afleiðusaminga á markaðsvirði og því kemur fram gjaldfærsla að fjárhæð 14.658
m.kr. sem að stórum hluta er vegna styrkingar íslensku krónunnar á tímabilinu. 
Sem alþjóðlegt fjárfestingafélag beitir félagið gengisvörnum til að styðja við
eign félagsins í Landsbanka Íslands hf. og draga úr gengisáhrifum á eignir
félagsins í evrum talið.  Þar sem félagið beitir hlutdeildaraðferð á eign sína
í bankanum er hækkun á markaðsverði eignarinnar ekki færð að fullu á móti þessu
tapi. 

Bókfært eigið fé í lok tímabilsins nam 24.622 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi
og lækkaði það um 16,2% frá árslokum 2006.  Ef eignarhlutur félagsins í
Landsbanka Íslands hf. væri færður til eignar á markaðsverði væri eigið fé
félagsins 107.129 m.kr. að teknu tilliti til tekjuskattsáhrifa og
eiginfjárhlutfall þá 42%.  Í árslok 2006 var eigið fé félagsins skv. sömu
aðferð 73.063 m.kr. og hefur því aukist um 47% á tímabilinu. 

Helstu stærðir úr árshlutareikning félagsins eru eftirfarandi (fjárhæðir eru í
milljónum króna): Sjá viðhengi.

Pièces jointes

samson 30 juni 2007 frettatilkynning.pdf 0607 samson.pdf