- Afkoma Atorku Group hf fyrstu 9 mánuði ársins 2007


Helstu niðurstöður úr 9 mánaða uppgjöri Atorku Group hf.:

Samstæðureikningur:

•       Hagnaður eftir skatta í samstæðureikningum Atorku Group hf., fyrstu 9
        mánuði ársins var 2,5 milljarðar króna. 
•       Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 2,7 milljarðar króna.
•       Tekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins voru 53,2 milljarðar króna.
•       Heildareignir samstæðunnar í lok september voru 104,7 milljarðar króna.
•       Eigið fé var 13 milljarðar í lok september.

Móðurfélagsreikningur:

•	Hagnaður eftir skatt á fyrstu níu mánuðum ársins var 6,8 milljarðar króna. 
•	Hagnaður eftir skatt á þriðja ársfjórðungi var 734 milljónir króna
•	Heildareignir í lok september voru 61,4 milljarðar króna 
•	Eigið fé var 22,9 milljarðar króna í lok september
•	Arðsemi eigin fjár var 39% á ársgrundvelli
•	Eiginfjárhlutfall er 37%
•	Hagnaður á hlut á fyrstu 9 mánuðum ársins 2,12

Magnús Jónsson forstjóri Atorku;

 „Afkoma Atorku fyrstu níu mánuði ársins var góð þrátt fyrir krefjandi
markaðsaðstæður. Atorka innleysti verulegan hagnað með sölu á einu af
fjárfestingarverkefnum sínum.  Jafnframt fjárfesti félagið í nýju verkefni,
Geysi Green Energy og er þar kjölfestufjárfestir. Við sjáum veruleg tækifæri
með þátttöku í uppbyggingu á Geysi og hefur félagið í dag sterka stöðu til þess
að verða leiðandi í nýtingu á jarðvarma í heiminum.  Atorka hefur í auknum mæli
verið að beina sjónum sínum til Asíu, meðal annars með fjárfestingum í
heilbrigðisgeiranum og infrastrúktúr, nú síðast með kaupum á um 10% hlut í
leiðandi félagi í uppbyggingu á vatnshreinsistöðvum í Kína.  Ljóst er að með
aukinni velmegun munu Kínverjar fjárfesta verulega í bættum lífsgæðum og sjáum
við því mikil tækifæri í fjárfestingum því tengdu. 
Atorka er með sterka fjárhagsstöðu og í góðri stöðu til að nýta sér þau
tækifæri sem munu skapast á komandi misserum.“ 

Helstu viðburðir 
•       Allur eignarhlutur í Jarðborunum var seldur til Geysir Green Energy.
        Heildarvirði (Enterprise Value) sölunnar var 17,7 milljarðar króna.
        Innleystur 
        hagnaður frá upphafi fjárfestingarinnar er um 11 milljarðar króna þar
        af á fjórða milljarð á öðrum ársfjórðungi í móðurfélagsreikningi. 
•       Atorka gerðist kjölfestufjárfestir í Geysir Green Energy (GGE) og
        keypti 32% hlut. Kaupverð var rúmir 7 milljarðar króna. 
•       Jarðboranir gerðu nýlega samning við Landsvirkjun um borun á fimm
        rannsóknarholum á næsta ári. 
•       Geysir Green Energy keypti hlut Landsvirkjunar í Enex og á félagið nú
        um 72% hlut. 
•       Kaup á tæplega 24% hlut í Shanghai Century Acquisition Corp (SHA) sem er
        skráð á AMEX markaðnum í NY. SHA hefur samið um kaup á kínverska
        lyfjafyrirtækinu Kelun Pharmaceutical með fyrirvara um samþykki
        samkeppnisyfirvalda í Kína. Lyfjamarkaðurinn í Kína er í miklum vexti
        með aukinni velmegun og fólksflutningi úr sveitum til borga. 
•       Promens lauk yfirtöku á plastframleiðslufyrirtækinu STE Packaging
        Development á Spáni sem framleiðir umbúðir fyrir snyrtivörur og íhluti
        fyrir þær. Ný verksmiðja var opnuð í Póllandi og verið er að skoða
        frekari fyrirtækjakaup í Austur Evrópu. Í byrjun nóvember sameinaði
        Promens alla starfsemi sína undir einu nafni sem styrkir ímynd
        félagsins. 
•       Eignarhlutur í Amiad hefur verið aukinn í tæp  22%. Amiad Filtration er
        leiðandi á alþjóðamarkaði í framleiðslu á vatnshreinsibúnaði. Mikill
        vöxtur er á þessum markaði og er vaxandi eftirspurn eftir hreinu vatni. 
•       Atorka hefur jafnframt bætt við nýrri fjárfesingu í vatnshreinsiiðnaði
        með kaupum á um 10% hlut í Asian Environment Holdings. Félagið lauk til
        að mynda nýlega við uppbyggingu á 200.000 m3 vatnshreinsistöð í Kína sem
        félagið mun eiga og reka næstu 20 árin og vinnur að uppbyggingu á annan
        tug sambærilegra verkefna í Asíu. 
•       Atorka hefur endurfjármagnað stærstan hluta af skammtímalántökum sínum,
        5,5 milljarða króna, með nýjum lántökum til 2 ára eða lengur. 

Nánari upplýsingar veita;

Magnús Jónsson, 
forstjóri í síma 540 6200 

Valdís Arnardóttir
kynningarstjóri í síma 840 6217

Reikninga Atorku Group má finna á heimasíðu félagsins www.atorka.is 

Um Atorku Group

Atorka er fjárfestingarfélag sem styður framsækin fyrirtæki, sem njóta góðs af
hnattrænni þróun, til leiðandi hlutverks á heimsvísu. Í fjárfestingum sínum
leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur og hafi sterkt
stjórnendateymi og að fyrirtækið starfi við góð skilyrði til verulegs innri og
ytri vaxtar. Gert er ráð fyrir að tímalengd verkefnanna sé um 3-5 ár og að
mikil tækifæri séu til vaxtar og verðmætaaukningar. 

Atorka Group hf.
Hlíðasmára 1 
201 Kópavogur
Sími: 540 6200 - Fax: 540 6220
Netfang: atorka@atorka.is

Pièces jointes

atorka group-q3-frettatilkynning-isl.pdf atorka parent q3 results.pdf atorka group consolidated 3q results.pdf
GlobeNewswire