Það tilkynnist hér með að Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Kristinn ehf. hafa ákveðið að hafna því að nýta sér kauprétt að eignarhlutum í Vinnslustöðinni hf., sem eru í eigu Stillu ehf. og tengdra félaga í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona, skv. kaupréttarsamningi dags. þann 24. nóvember 2007. Tilkynning var send um kaupréttinn þann 26. nóvember síðastliðinn. Frestur til að nýta kaupréttinn var til kl. 16.00 í dag 19. desember 2007.
- 19.12.2007
| Source: Vinnslustöðin hf.