Landsbankinn mun birta rekstrarniðurstöðu á ársuppgjöri 2007 eftir lokun markaða mánudaginn 28. janúar 2008. Kynningarfundur í Reykjavík 28. janúar Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, bankastjórar Landsbankans, munu kynna afkomu bankans og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á Hótel Nordica og hefst kl. 17.00. Kynningarefni frá fundinum verður birt á sama tíma á vef Landsbankans. Vinsamlegast skráið ykkur á afkomukynningu í Reykjavík hér: http://www.landsbanki.is/skraning/arsuppgjor2007 Kynningarfundur í London 29. janúar Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar Landsbankans, munu kynna afkomu bankans og svara fyrirspurnum. Hægt verður að fylgjast með útsendingu af kynningunni á vef Landsbankans www.landsbanki.com/ir en öll fundargögn verða birt þar á sama tíma. Tími: 11:00 ( 11.00 UK og 12.00 CET) Staðsetning: Merchant Taylors Hall, 30 Threadneedle Street, London, EC2R 8JB. Skráning: Vegna strangra öryggisstaðla er nauðsynlegt að gestir skrái sig á http://www.landsbanki.is/english/registration/q42007results Útsending og símafundur Þeir sem vilja fylgjast með fundinum í London geta séð kynninguna í rauntíma á www.landsbanki.com/ir. Einnig verður hægt að hlusta á fundinn símleiðis með því að hringja 10 mínútum fyrir fund í síma +44 (0) 1452 567 098. Fundargögn og upptaka Hægt verður að nálgast fundargögn ásamt hljóð- og myndupptöku af kynningunni á www.landsbanki.com/ir að fundi loknum. Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy, í gegnum tölvupóst, ir@landsbanki.is, eða síma 410-7200 / 861-1440.