Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2007. Á árinu 2007 útvíkkaði Landsvaki vöru- og þjónustuframboð sitt með stofnun níu sjóða, fimm fjárfestingarsjóða og fjögurra fagfjárfestasjóða. Landsvaki hf. er dótturfélag Landsbanka Íslands hf. og er A-hluti ársreiknings Landsvaka hf. hluti af samstæðureikningi bankans. Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi. • Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. • Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2007, efnahag þess 31. desember 2007 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna á árinu 2007, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur. Horfur í rekstri Landsvaka hf. eru almennt góðar og félagið er vel í stakk búið til að mæta vexti í starfseminni. Lykilárangursþættir í rekstri Landsvaka er árangur í ávöxtun fjármuna og vöxtur stofna í umsýslu. Vel hefur tekist til með ávöxtun sjóða og stofnar félagsins vaxið verulega en Landsbankinn er aðalsöluaðili sjóða Landsvaka. Verðbréfasjóðir, fjárfestingarsjóðir og fagfjárfestasjóðir Landsvaka hf. árið 2007. • Í árslok 2007 voru átta verðbréfasjóðir, þrettán fjárfestingarsjóðir og átta fagfjárfestasjóðir í rekstri hjá Landsvaka hf. • Ávöxtun sjóða félagsins var almennt góð á árinu 2007. Ávöxtun verðbréfa- og fjárfestingarsjóða er birt í skýringu 3 með viðkomandi reikningum Landsvaka hf. Lykiltölur úr ársreikningi verðbréfasjóða, í þús. kr.: Sjá viðhengi. Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veita Stefán H. Stefánsson, stjórnarformaður í síma 410 7151 og Sigurður Ó. Hákonarson framkvæmdastjóri í síma 410 7171.
2007
| Source: Landsvaki