Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag sett lánshæfismatseinkunnir íslensku bankanna, þar með talið Landsbankans, vegna langtíma og skammtíma skuldbindinga og vegna fjárhagslegs styrks, í neikvæða athugun. Fitch reiknar með að endanleg niðurstaða varðandi lánshæfimatseinkunirnar fáist á næstu vikum í kjölfar ítarlegrar skoðunnar fjárhagslegrar stöðu og áhættu bankanna. Jafnframt hefur Fitch sett skammtíma- og langtímaeinkunnir Heritable Bank í neikvæða athugun. Nánari rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu sem fylgir hér með. Frekari upplýsingar veita: Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason s. 898 0177 og Halldór J. Kristjánsson í s. 820 6399, og Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340.
- Fitch setur lánshæfismatseinkunnir íslensku bankanna í neikvæða athugun
| Source: Landsbanki Íslands hf.