Alfesca tilkynnir að viðræðum um fyrirhuguð kaup á breska fyrirtækinu Oscar Mayer, sem framleiðir tilbúna rétti fyrir verslanakeðjur, hefur verið slitið. Ákvörðunin var tekin í kjölfar verulegra hækkana á hráefnisverði undanfarna mánuði sem hafa haft áhrif á rekstur fyrirtækisins og leitt til þess að rekstrarumhverfið á markaði fyrir tilbúna rétti í Bretlandi hefur breyst til hins verra. Þessir óvissuþættir þýða að fyrirhuguð áform hefðu ekki haft í för með sér virðisauka fyrir huthafa Alfesca á þessum tíma. Áfram verður unnið að því að þróa og stækka Alfesca. Sterkur efnahagsreikningur og stuðningur fjármálastofnana og kjölfestuhluthafa gerir Alfesca kleift að skoða áfram ný tækifæri sem henta við núverandi markaðsskilyrði. Frekari áform verða tilkynnt eftir því sem efni standa til. Nánari upplýsingar veita: Antony Hovanessian, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, sími 477 7000 Hrefna Ingólfsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs, sími 477 7007 Um Alfesca Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia, Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 616 milljónir Evra og starfsmenn eru um 3,500 Alfesca er skráð í Norrænu OMX-kauphöllinni á Íslandi (OMXI: A). Upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com.