Alfesca hefur selt norska fiskölufyrirtækið Christiansen Partner AS til til CP Holding AS, fyrirtækis sem er undir stjórn John Synnes, framkvæmdastjóra Christiansen Parter. Þessi sala markar tímamót því nú á Alfesca ekki lengur neina aðild að sölu á óunnum fiski enda er það stefna fyrirtækisins að einbeita sér að framleiðslu og markaðssetningu á unnum matvælum. Afkoma Christiansen Partner verður skilgreind sem aflögð starfsemi í reikningum Alfesca fyrir fjárhagsárið sem lýkur í júní 2008. Heildarvelta Christiansen Partner nam €25,4 milljónum á fjárhagsárinu 2006/7. Bókfært virði heildareigna fyrirtækisins sem var selt nam €2,5 milljónum í lok síðasta árs. Reiknað er með að þessi sala nú muni hafa óveruleg en þó frekar jákvæð áhrif á afkomu Alfesca. Nánari upplýsingar veita: Antony Hovanessian framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar +354 477 7000 ah@alfesca.com Hrefna Ingolfsdottir forstöðumaður samskiptasviðs +354 477 7000 hi@alfesca.com Um Alfesca Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia, Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 616 milljónir Evra og starfsmenn eru um 3,500 Alfesca er skráð í Norrænu OMX-kauphöllinni á Íslandi (OMXI: A). Upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com. Fréttatilkynning þessi er birt á bæði ensku og íslensku. Ef um misræmi er að ræða gildir enski textinn.