Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. ("Straumur") birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2008 miðvikudaginn 30. apríl. Kynningarfundur verður haldinn sama dag á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2. Forstjóri Straums, William Fall, og fjármálastjóri Straums, Stephen Jack, kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku. Fundurinn hefst klukkan 12:00 en boðið verður upp á léttan hádegisverð frá 11:30. Dagskrá: 11:30 Húsið opnar og boðið upp á léttan hádegisverð 12:00 William Fall forstjóri og Stephen Jack fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum úr sal 13:15 Fundarlok Fundarstjóri er Georg Andersen, forstöðumaður fjárfestatengsla. Hægt verður að nálgast kynningarefni sem birt verður á fundinum á vef Straums, www.straumur.com, að fundinum loknum. Fundurinn verður sendur út beint á netinu á slóðinni www.straumur.com/webcast. Einnig verður hægt að horfa á upptökuna eftir fundinn. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen Forstöðumaður fjárfestatengsla sími: 585 6707 farsími: 858 6707
Kynning á afkomu Straums á fyrsta ársfjórðungi 2008
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.