Afkomutilkynning Reykjavík, 28. apríl 2008 Afkoma Bakkavör Group á fyrsta ársfjórðungi 2008: Rekstrarhagnaður 2,4 milljarðar króna • Velta 57,6 ma.kr. (377,3 m.punda), 8% aukning • Góð sala á meginlandi Evrópu, 5,6 ma.kr. (36,6 m.punda), 9% aukning á föstu gengi • Söluaukning í Asíu 28% • EBITDA 4,0 ma.kr. (26,3 m.punda), 25% lækkun • EBITDA hlutfall 7,0% • Rekstrarhagnaður (EBIT) 2,4 ma.kr. (16,0 m.punda), 37% lækkun • Handbært fé frá rekstri fyrir skatta og vexti 977 m.kr. (6,4 m.punda) • Hagnaður hluthafa 107 m.kr. (0,7 m.punda) án áhrifa virðisbreytingar skiptasamnings • Arðsemi eigin fjár 1,1% án áhrifa virðisbreytingar skiptasamnings, samanborið við 16,2% • Hagnaður á hlut 0.02 pens án áhrifa virðisbreytingar skiptasamnings • Félagið styrkti starfsemi sína á alþjóðavettvangi með kaupum á þremur fyrirtækjum á tímabilinu - í Kína, Hong Kong og Bandaríkjunum • Kaup á tveimur fyrirtækjum til viðbótar í apríl - á Ítalíu og í Hong Kong • Í dag tilkynnti félagið að það hafi gert skiptasamning (e. Contract for Difference) um 10,9% hluti í Greencore Group PLC • Arðgreiðsla 15. apríl vegna ársins 2007 sem nam 55% af útgefnu hlutafé Ágúst Guðmundsson, forstjóri: „Niðurstöður fyrsta ársfjórðungs eru vonbrigði. Erfiðar aðstæður á mörkuðum höfðu mikil áhrif á afkomu félagsins, svo sem áframhaldandi verðhækkanir á hráefni, ásamt umtalsverðri lækkun á gengi breska pundsins gagnvart evru. Einnig hafði hagræðing í framleiðslu félagsins á tilbúnum réttum, sem hafin var á síðasta ári, mikil áhrif á afkomu og sölu í Bretlandi. Hins vegar teljum við að félagið muni njóta ávinnings af þessum breytingum þegar til lengri tíma er litið. Þá er talið að óvissa vegna núverandi efnahagsástands hafi einnig haft áhrif á sölu á ferskri tilbúinni matvöru í Bretlandi. Við gerum ráð fyrir að viðskiptaumhverfið verði áfram krefjandi, en reiknum jafnframt með að sala félagsins muni taka við sér að nýju á síðari hluta 2008. Sala og afkoma félagsins á meginlandi Evrópu og í Asíu var áfram góð og við sjáum veruleg vaxtartækifæri utan Bretlands í framtíðinni og einbeitum okkur að því að styrkja stöðu félagsins á meginlandi Evrópu, í Asíu og Bandaríkjunum. Það sem af er þessu ári höfum við keypt fimm fyrirtæki utan Bretlands, í Kína, Hong Kong, Bandaríkjunum og á Ítalíu. Ennfremur tilkynntum við í dag um að félagið hafi gert skiptasamning um 10.9% hlut í Greencore Group en við álítum að þessi samningur falli vel að stefnu Bakkavarar og endurspegli trú okkar á markaðnum fyrir fersk tilbúin matvæli. Langtímahorfur félagsins eru mjög góðar. Undirstöður rekstrar Bakkavarar eru traustar og markaðsstaða góð á öllum þeim mörkuðum sem félagið starfar. Bakkavör Group er því vel í stakk búið til að takast á við krefjandi aðstæður og einbeita sér að frekari vexti á alþjóðavettvangi.“ Frekari upplýsingar veitir: Ásdís Pétursdóttir, fjárfestatengsl Sími: 858 9715 Um Bakkavör Group Bakkavör Group er leiðandi alþjóðlegt matvælafyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu ferskra tilbúinna matvæla. Bakkavör Group rekur nú 63 verksmiðjur og er með yfir 20 þúsund starfsmenn í 10 löndum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Reykjavík og er félagið skráð á OMX Nordic Exchange á Íslandi. (Auðkenni BAKK). Bakkavör Group var stofnað árið 1986 og hefur starfsemi félagsins vaxið verulega á síðastliðnum 20 árum. Í dag er félagið leiðandi í framleiðslu á ferskum tilbúnum matvælum á alþjóðavísu. Félagið hefur leiðandi markaðstöðu í Bretlandi í lykilvöruflokkum sínum og framleiðir yfir 6.000 vörutegundir í 18 vöruflokkum. Vörur félagsins eru seldar undir vörumerkjum stórmarkaðanna. Meginhluti starfseminnar fer fram í Bretlandi en auk þess er félagið með starfsemi í Frakklandi, Belgíu, Spáni, Tékklandi, Suður-Afríku, Kína, Bandaríkjunum, á Ítalíu og á Íslandi. Skráning á póstlista Bakkavör Group: investor.relations@bakkavor.com