Stjórn Bakkavör Group staðfestir að félagið hefur gert skiptasamning (e. Contract of Difference) um 22.028.795 hluti í Greencore Group PLC sem samsvarar 10,9% af útgefnu hlutafé félagsins. Stjórn Bakkavör Group hefur upplýst stjórn Greencore Group um samninginn. Ágúst Gudmundsson, forstjóri: „Þessi samningur endurspeglar þá trú sem við höfum á markaðnum fyrir fersk tilbúin matvæli. Greencore Group er vel rekið félag með sterka samkeppnisstöðu í lykilvöruflokkum sínum og við teljum félagið vera vel í stakk búið til að styrkja markaðsstöðu sína enn frekar í framtíðinni.” Bakkavör Group er bundið af reglum NASDAQ OMX Nordic Exchange og Irish Stock Exchange, þar sem Greencore Group PLC er skráð. Nánari upplýsingar: Ásdís Pétursdóttir, fjárfestatengsl Bakkavör Group hf. Sími: 550-9715 eða 858 9715 Um Bakkavör Group www.bakkavor.com Bakkavör Group er leiðandi alþjóðlegt matvælafyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu ferskra tilbúinna matvæla. Bakkavör Group rekur nú 63 verksmiðjur og er með yfir 20 þúsund starfsmenn í 10 löndum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Reykjavík og er félagið skráð á OMX Nordic Exchange á Íslandi. (Auðkenni BAKK). Bakkavör Group var stofnað árið 1986 og hefur starfsemi félagsins vaxið verulega á síðastliðnum 20 árum. Í dag er félagið leiðandi í framleiðslu á ferskum tilbúnum matvælum á alþjóðavísu. Félagið hefur leiðandi markaðstöðu í Bretlandi í lykilvöruflokkum sínum og framleiðir yfir 6.000 vörutegundir í 18 vöruflokkum. Vörur félagsins eru seldar undir vörumerkjum stórmarkaðanna. Meginhluti starfseminnar fer fram í Bretlandi en auk þess er félagið með starfsemi í Frakklandi, Belgíu, Spáni, Tékklandi, Suður-Afríku, Kína, Bandaríkjunum, á Ítalíu og á Íslandi. Um Greencore Group PLC www.greencoregroup.com Greencore Group er eitt af leiðandi fyrirtækjum Evrópu í framleiðslu á tilbúnum matvælum og hráefni fyrir evrópskan smásölumarkað og matvælaiðnað í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Félagið er með starfsemi í Írlandi, Bretlandi, Hollandi og Belgíu og eru starfsmenn um 9.000. Greencore Group er írskt fyrirtæki og er skráð í kauphallirnar í Írlandi og London (Irish Stock Exchange, auðkenni GCG, og London Stock Exchange, auðkenni GNC). Velta félagsins fyrir reikningsárið sem endaði 28. september var 1,3 milljarðar evra og hagnaður fyrir skatta var 75,1 milljón evra. Skráning á póstlista Bakkavör Group: investor.relations@bakkavor.com
Bakkavör Group hefur gert skiptasamning um 10,9% hlutafjár í írska matvælafyrirtækinu Greencore Group PLC
| Source: Bakkavör Group hf.