Fasteignafélagið Landic Property hf hefur selt Keops Development til danska fjárfestingarfélagsins Stones Invest. Keops Development er byggingarþróunardeild sem fylgdi með Fasteignafélaginu Keops A/S sem Landic Property yfirtók síðastliðið haust. Þá þegar gáfu forráðamenn Landic Property yfirlýsingu um að Keops Development yrði selt, enda samrýmdist starfsemi þess ekki hefðbundnum rekstri á fasteignafélagi. Unnið hefur verið að því síðan og samningar um söluna hafa verið undirritaðir í Danmörku. Skarphéðinn Berg Steinarsson forstjóri Landic Property segir: „Því var lýst yfir þegar yfirtakan á Keops var kynnt í september 2007, að starfsemi Keops Development samræmdist ekki okkar viðskiptahugmyndum og kjarnastarfsemi fasteignafélags um að verða stærsta fasteignafélag á Norðurlöndunum. Strax við yfirtökuna á Keops var því lýst yfir að Keops Development yrði selt. Nú kemur að rekstri Keops Development öflugur fjárfestir, Stones Invest, sem við trúum að muni efla starfsemi Keops Development á komandi árum.“ Steen Gude forstjóri Stones Invest segir: „Keops Development fellur mjög vel að starfsemi Stones Industry deildarinnar okkar. Keops Development er framsækið og sterkt í byggingarstarfsemi, og er þegar með mörg spennandi verkefni í gangi á því sviði. Þekking Keops Development og verkefni þess er frábær viðbót við okkar kjarnastarfsemi.“ Hið þekkta þróunarverkefni „Lighthouse byggingarsvæðið“ á hafnarsvæðinu í Árósum er undanskilið í sölunni og mun Landic Property áfram taka þátt í því. Núverandi yfirmaður Keops Development, Preben Thomsen, mun áfram leiða þátttöku Landic í þessu fjölþjóðlega verkefni. Ákveðið hefur verið að skilmálar samningsins verði ekki gefnir upp en samningurinn verður endanlega staðfestur að lokinni áreiðanleikakönnunar þann 10. júní, 2008. Ef misræmi er á milli tilkynninga gildir enska útgáfan. Nánari upplýsingar veita: Fyrir fjölmiðla: Páll Benediktsson forstöðumaður Samskiptasviðs. Netfang: PABE@landicproperty.com Farsími: +354 895 6066 Fyrir fjárfesta: Guðrún Ögmundsdóttir Netfang: gog@landicproperty.com Farsími: +354 860 7772