Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag: • Hagnaður eftir skatta nam 215,6 m.kr. samanborið við 4.342,5 m.kr. fyrstu sex mánuði ársins 2007. • Fyrir skatta var afkoman neikvæð um 3.020,1 m.kr. samanborið við 5.203,8 m.kr. hagnað fyrir sama tímabil 2007. • Vaxtatekjur námu 15.628,1 m.kr. og jukust um 210,3% frá sama tímabili árið 2007. • Vaxtagjöld námu 11.199,2 m.kr og jukust um 167,6% miðað við sama tímabil síðasta árs. • Hreinar vaxtatekjur námu 4.428,9 m.kr. samanborið við 852,5 m.kr. fyrri hluta árs 2007 og hafa aukist um 419,5%. • Hreinar rekstrartekjur námu 924,9 m.kr. samanborið við 6.687,9 m.kr. fyrri hluta árs 2007 og hafa dregist saman um 86,2%. • Rekstrargjöld námu 2.168,3 m.kr og jukust um 63,2% frá sama tímabili árið 2007. Launakostnaður hækkaði um 99,4% en almennur rekstrarkostnaður hefur aukist um 38,1%. • Virðisrýrnun útlána nam 1.776,7 m.kr. samanborið við 155,4 m.kr. fyrri hluta árs 2007. • Afskriftarreikningur lána og krafna nam í lok júní 2008 2,4% af útlánum og veittum ábyrgðum en var 1,5% í árslok 2007 og 1,2% á miðju ári 2007. • Útlán til viðskiptavina námu 154.431,5 m.kr. og jukust um 31,8% frá árslokum 2007. • Innlán viðskiptamanna námu 93.526,5 m.kr. og jukust um 33,4% frá árslokum 2007. • Eigið fé í lok júní 2008 nam 45.303,7 m.kr. • Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum um fjármálafyrirtæki var 23,5% í lok tímabilsins. • Vaxtamunur tímabilsins var 2,9% samanborið við 1,6% fyrir sama tímabil árið 2007 og 1,9% fyrir allt árið 2007. • Heildarfjármagn í lok júní 2008 nam 226.183,7 m.kr. og hefur aukist um 22,4% frá áramótum. Góð afkoma af grunnrekstri - Sterk eiginfjárstaða Grunnrekstur Byrs gekk vel fyrstu sex mánuði ársins 2008 og hafa hreinar vaxtatekjur aldrei verið hærri þrátt fyrir aukinn fjármögnunarkostnað. Hreinar vaxtatekjur standa undir samanlögðum rekstrargjöldum og virðisrýrnun útlána. Hreinar rekstrartekjur dragast verulega saman milli tímabila og má rekja helstu ástæður þess til varúðarniðurfærslna á eignasafni sparisjóðsins vegna óhagstæðra markaðsaðstæðna. Að stærstum hluta er um óinnleyst tap að ræða. Það sem af er ári hefur Byr hagrættí rekstri sem mun skila sér í lægri rekstrarkostnaði á komandi misserum. Í ljósi versnandi efnahagsaðstæðna sem einkennst hafa af lækkunum á hlutabréfamörkuðum, gengisfalli krónunnar, háum stýrivöxtum og óvissu um framtíðarhorfur, var tekin ákvörðun um að auka verulega varúðarframlag íafskriftarreikning útlána. Varúðarframlagið endurspeglar ekki endanlega töpuð útlán, heldur er um að ræða fjárhæð sem lögð er til hliðar til að mæta hugsanlegum útlánatöpum í framtíðinni. Heildareignir Byrs hafa aukist um 22,4% frá áramótum og nema 226.183,7 m.kr. á miðju ári. Aukninguna má að mestu leyti rekja til sameiningar við Sparisjóð Norðlendinga, vaxandi verðbólgu og gengislækkunar krónunnar. Lausafjárstaða Byrs er sterk sem kemur sér vel við núverandi aðstæður á fjármagnsmörkuðum og aðgengi Byrs að lausafé er gott. Innlán hafa aukist um 33,4% á tímabilinu. Eiginfjárstaða Byrs er mjög traust og er eiginfjárhlutfall 23,5% sem er langt umfram þá 8% lágmarkskröfu sem almennt er gerð til fjármálafyrirtækja. Byr er því ákaflega vel í stakk búinn til að takast á við óvenjulegar og krefjandi aðstæður sem nú ríkja á mörkuðum. Nánari upplýsingar veita Ragnar Z. Guðjónsson og Magnús Ægir Magnússon sparisjóðsstjórar, sími 575- 4000.
- Afkoma Byrs sparisjóðs á fyrri helmingi 2008 - Hagnaður nam 215,6 m.kr. á tímabilinu-
| Source: Byr sparisjóður