Stjórn Glitnis sjóða hf., sem rekur Verðbréfasjóði Glitnis, Fjárfestingarsjóði Glitnis og Fagfjárfestasjóði Glitnis hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuðina 2008. 1. Afkoma Glitnis sjóða hf. fyrstu 6 mánuði 2008 Hagnaður Glitnis sjóða hf. eftir skatta fyrstu sex mánuðina 2008 nam 284 m.kr. samanborið við 6,1 m.kr. fyrstu sex mánuðina 2007. Rekstrartekjur námu 1.054 m.kr. samanborið við 716 m.kr. árið áður, jukust um 47,3% Rekstrargjöld námu 722 m.kr. samanborið við 708 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins 2007. Heildareignir félagsins námu 971 m.kr. en voru 764 m.kr. í ársbyrjun. Eigið fé í lok júní nam 642 m.kr. en var 358 m.kr. í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem er reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 157,2% í lok júní en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%. Fjármunir sjóða í stýringu Glitnis sjóða hf. námu 255.124 m.kr. í lok júní 2008 samanborið við 238.075 m.kr. í árslok 2007, jukust um 7,16%. Glitnir sjóðir hf. sér um stýringu og rekstur á sex sjóðsdeildum í Verðbréfasjóðum Glitnis, fimm deildum í Fjárfestingarsjóðum Glitnis og þremur deildum í Fagfjárfestasjóðum Glitnis. Einnig sér félagið um stýringu á tveimur sjóðum fyrir Glitnir Asset Management S.A. í Lúxemborg. Hrein eign í stýringu Glitnis sjóða hf. í Lúxemborg eru 2.074 m.kr. í lok júní 2008. Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Glitnis sjóða hf. og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning Verðbréfasjóða Glitnis og Fjárfestingarsjóða Glitnis. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af PricewaterhouseCoopers hf. Árshlutareikningur félagsins verður tilbúinn 10. september og mun liggja frammi hjá Glitni, Kirkjusandi, 4. hæð og á www.glitnir.is Nánari upplýsingar um árshlutareikning Glitnis sjóða hf. veitir Agla Elísabet Hendriksdóttir, fram¬kvæmda¬stjóri í síma 440-4917.