Fréttatilkynning: Reykjavík 29. september, 2008 * Íslenska ríkið greiðir 600 milljónir Evra fyrir 75% hlut í Glitni banka hf * Um er að ræða nýtt hlutafé * Viðskiptavinir, lánadrottnar og starfsmenn munu ekki finna fyrir breytingu * Eigin- og lausafjárstaða bankans styrkt verulega * Lárus Welding beðinn um að halda áfram störfum sínum fyrir bankann og hefur hann fallist á það * Forsendur fjármögnunar Glitnis breyttust á örfáum dögum * Stjórn og stærstu hluthafar hafa samþykkt viðskiptin Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að ríkissjóður leggi bankanum til nýtt hlutafé og eignist með því 75% hlut í Glitni Banka hf. Fyrir hlutinn greiðir íslenska ríkið 600 milljónir Evra eða um 84 milljarða íslenskra króna. Um er að ræða nýtt hlutafé. Stjórn og stærstu hluthafar Glitnis hafa fallist á viðskiptin með fyrirvara um samþykki hluthafafundar. Fjármögnun Glitnis hefur gengið vel á þessu ári þrátt fyrir afar erfiðar markaðsaðstæður. Engu að síður hafa viðburðir síðustu tveggja vikna á bandarískum og evrópskum fjármálamörkuðum haft í för með sér ófyrirsjáanlegar afleiðingar sem gerbreyttu forsendum skammtíma fjármögnunar Glitnis. Í því ljósi ákvað stjórn Glitnis að óska eftir viðræðum við Seðlabanka Íslands til þess að ræða mögulegar lausnir á þeim vanda sem bankinn stóð frammi fyrir. Þær viðræður leiddu til framangreindrar niðurstöðu. Ríkið hefur farið þess á leit við Lárus Welding, forstjóra, að hann haldi áfram störfum sínum fyrir bankann. Hann hefur fallist á þá beiðni. Tillagan var sett fram seint í gærkvöldi og var boðað til stjórnarfundar í Glitni banka í morgun. Á þeim fundi var ákveðið að ganga að henni. Þar með er bankinn kominn með afar traustan hluthafa og bakhjarl. Grunnrekstur Glitnis er traustur og bankinn og hefur á þessu ári lagt ríka áherslu á að auka tekjur af kjarnastarfsemi. Þá hefur bankinn einnig lagt áherslu á að hagræða í rekstri og hefur hann náð góðum árangri í þeim efnum á árinu. Lárus Welding, forstjóri Glitnis banka hf. ,,Stjórn og stjórnendur bankans hafa unnið ötullega að fjármögnun bankans í ölduróti undanfarinna mánaða, en staðan versnaði til muna allra síðustu daga. Þessi innkoma ríkisins styrkir eiginfjárstöðu bankans mjög og tekur af allan vafa um fjárhagslega stöðu Glitnis. Við höfum séð sambærilegar aðgerðir í löndunum í kringum okkur sem endurspeglar vel þá erfiðu stöðu sem ríkir á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Þessi aðgerð hefur því miður neikvæð áhrif á núverandi hluthafa en er nauðsynleg til lengri tíma litið. Viðskiptavinir okkar munu ekki finna fyrir breytingum og Glitnir mun áfram leggja höfuðáherslu á að veita góða og öfluga þjónustu. Ég tel mig einnig geta fullyrt að þessar aðgerðir endurspegla mikið traust stjórnvalda til Glitnis og eru mikilvægur liður í því að tryggja fjármálastöðugleika í landinu. Landslagið á íslenskum fjármálamarkaði hefur með þessu breyst. Glitnir stendur eftir sterkari en fyrr." Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður Glitnis banka hf."Ég hef lagt áherslu á að auka hagræði í rekstri bankans. Mér þykir mjög miður að við skyldum ekki komast með öðrum hætti í gegnum þennan krappa sjó eins og lagt var upp með. Þessi niðurstaða tryggir þó framtíð bankans og hagsmuni viðskiptavina og starfsfólks. Það er mér mjög mikilvægt. Okkar fólk hefur unnið mjög gott starf við gríðarlega erfiðar aðstæður." Nánari upplýsingar veitir: Már Másson, forstöðumaður samskiptasviðs, sími: 844 4990, netfang: mar.masson@glitnir.is . Sigrún Hjartardóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 844 4748, netfang: sigrun.hjartardottir@glitnir.is .
Íslenska ríkið kaupir 75% í Glitni
| Source: Glitnir banki hf.