Reykjavík, 3. október 2008
HLUTHAFAFUNDUR GLITNIS BANKA HF.
Með vísan til 7. gr. samþykkta Glitnis banka hf. er hér með boðað til
hluthafafundar í félaginu. Hluthafafundurinn verður haldinn í
Háskólabíói, stóra sal, Hagatorgi, Reykjavík, laugardaginn 11.
október 2008 kl. 17:00.
Dagskrá:
1. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.[1]
2. Önnur mál.
Dagskrá fundarins og endanlegar tillögur liggja frammi hluthöfum til
sýnis á skrifstofu félagsins, Kirkjusandi 2, 5. hæð, viku fyrir
hluthafafund hið minnsta. Þessi gögn verða einnig aðgengileg á
www.glitnir.is.
Óski hluthafi eftir því að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á
fundinum skal hann gera skriflega kröfu um það til stjórnar eigi
síðar en fimm virkum dögum fyrir upphaf fundar. Skal ósk hluthafa
komið skriflega til skrifstofu félagsins með sannanlegum hætti[2]
fyrir miðnætti sunnudaginn 5. október 2008.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað frá kl. 16:00 á fundardegi.
Afhendingu aðgöngumiða og atkvæðaseðla verður hætt kl. 17:00.
Hluthafar geta greitt atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins
rafrænt.
Hluthafar sem hyggjast greiða atkvæði með rafrænum hætti þurfa að
hafa aðgang að interneti. Nánari upplýsingar um framkvæmd rafrænnar
þátttöku á fundinum má nálgast á heimasíðu félagsins, www.glitnir.is.
Stjórn Glitnis banka hf.
[1] Stjórn Glitnis banka hf. leggur svohljóðandi tillögur til
breytinga á samþykktum félagsins fyrir hluthafafund, haldinn 11.
október 2008:
Að hlutafé félagsins verði aukið um kr. 44.642.103.909 - fjörutíu og
fjóra milljarða sex hundruð fjörutíu og tvær milljónir eitt hundrað
og þrjú þúsund níu hundruð og níu krónur - að nafnverði.
Aukningarhlutirnir verði seldir Ríkissjóði Íslands fyrir 600.000.000€
- sex hundruð milljónir Evra. Hluthafar falla frá forgangsrétti til
áskriftar vegna hækkunar þessarar.
Verði tillagan samþykkt mun 1. mgr. 4. gr. samþykkta Glitnis banka
hf. verða svo að hækkun afstaðinni:"Hlutafé félagsins er kr. 59.522.805.212 - fimmtíu og níu milljarðar
fimm hundruð tuttugu og tvær milljónir átta hundruð og fimm þúsund
tvö hundruð og tólf krónur - og skiptist í jafn marga hluti að
fjárhæð 1 króna." Þá fellur 5. mgr. 6. gr. samþykkta Glitnis banka
hf. brott.
[2] Hægt er að koma skriflegri kröfu til skrifstofu félagsins á
faxnúmer: 4404001 eða á pdf-formi á netfangið:
hluthafafundur@glitnir.is. Frumritum gagna skal skilað til
skrifstofu félagsins mánudaginn 6. október 2008.
Hluthafafundur Glitnis Banka hf.
| Source: Glitnir banki hf.