Aðalfundur Alfesca hf. verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica Hotel,
mánudaginn 20. október 2008 og hefst klukkan 16:00
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningar félagsins fyrir síðastliðið starfsár, ásamt skýrslu
endurskoðenda.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári.
4. Ákvörðun stjórnarlauna.
5. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
6. Kjör stjórnar til eins árs.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
9. Tillaga um breytingar á samþykktum:
Tillaga um að stjórn félagsins fái heimild til að auka hlutafé félagsins með
útgáfu 2.300.000.000 nýrra nafnverðshluta eða til að taka skuldabréfalán að
fjárhæð allt að 2.300.000.000 krónum er veiti lánardrottni rétt til þess að
breyta kröfu sinni á hendur félaginu í hluti í því og í tengslum við það
hafi stjórn félagsins heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að
2.300.000.000 að nafnverði með útgáfu 2.300.000.000 nýrra hluta. Kaupgengi
hlutanna og söluskilmálar hlutanna skulu vera nánar ákveðnir af stjórn
félagsins.
Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum til áskriftar að þessum nýju hlutum.
Heimildin gildir til 01.10.2013 að því marki sem hún hefur ekki verið nýtt
fyrir þann dag.
Tillaga um breytingu á ákvæði samþykkta félagsins sem viðkemur rafrænni
þátttöku hluthafa. Stjórninni veitt heimild til að ákveða hvort og hvernig
rafrænni þátttöku hluthafa er háttað og atriði er viðkoma framkvæmd slíkrar
þátttöku hluthafa skýrð.
10. Tillaga um arðstefnu félagsins.
11. Önnur mál.
Fundarstörf fara fram á ensku.
Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði
teknar til umræðu á fundinum verður að skila þeim til stjórnar félagsins
eigi síðar en sjö dögum fyrir fundinn.
Dagskrá fundarins, ársskýrslur og endanlegar tillögur verða aðgengilegar
hluthöfum á skrifstofum félagsins að Kringlunni 7, 103 Reykjavík, sjö dögum
fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað sem og á
skrifstofum félagsins fimm dögum fyrir fundinn.
Hluthöfum er gefinn kostur á að greiða atkvæði um tillögur eða taka þátt í
kosningum bréflega. Geta hluthafar óskað eftir að fá atkvæðaseðla senda og
skal skrifleg beiðni þar um hafa borist skrifstofu félagsins fimm dögum
fyrir fundinn. Einnig geta hluthafar vitjað atkvæðaseðla sinna á skrifstofu
félagsins frá sama tíma eða greitt þar atkvæði. Atkvæði þannig greidd skulu
hafa borist skrifstofu félagsins fyrir upphaf fundar.
Frekari upplýsingar um félagið má finna á heimasíðu þess www.alfesca.com
Stjórn Alfesca hf.