Reykjavík, 9 október 2008 Matsfyrirtækið Moody's Investor Services tilkynnti í gær að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn sína á langtímaskuldbindingum Glitnis úr Baa2 í Caa1, á skammtímaskuldbindingum úr P2 í Not Prime og fjárhagslegan styrkleika úr D í E. Horfur fyrir á langtíma- og skammtímaskuldbindingum eru neikvæðar. Frekari upplýsingar veita: Sigrún Hjartardóttir, Forstöðumaður fjárfestatengsla í gegnum netfang sihj@glitnir.is og síma 440 4748
Moody's breytir einkunn á Glitni
| Source: Glitnir banki hf.