Samkomulag hefur náðst á milli stjórnar Alfesca og Q Iceland Holding ehf. (áður ELL 162 hf.) fjárfestingarfélags í eigu hans hátignar Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani, um að falla frá fyrirhugaðri áskrift að 850.000.000 hlutum í Alfesca í ljósi hins óvenjulega fjárhagslega óróa og þeirrar óvissu sem ríkir á hinum íslenska fjármálamarkaði og mikillar veikingar íslensku krónunnar, þar til markaðurinn verður stöðugri. Í bréfi til stjórnar Alfesca hefur hans hátign ítrekað stuðning sinn og áhuga á Alfesca sem langtímafjárfestingu og staðfest vilja sinn til að halda áfram að vinna með félaginu verði tækifæri til þess. Í ljósi ríkjandi aðstæðna hefur stjórnin ákveðið að fresta aðalfundi félagsins, sem átti að halda mánudaginn 20. október n.k., til þriðjudagsins 18. nóvember n.k. Nánari upplýsingar varðandi fundinn verða kynntar þegar fram líða stundir. Nánari upplýsingar veitir: Antony Hovanessian, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, í síma 477 7000. Um Alfesca Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia, Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 647 milljónir Evra og starfsmenn eru um 3.600. Alfesca er skráð í OMX Nordic Exchange, norrænu kauphöllinni á Íslandi sem er hluti af NASDAQ OMX Group Inc. (OMXI: A). Upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com. Fréttatilkynning þessi er birt bæði á ensku og íslensku. Ef um misræmi er að ræða gildir enski textinn.