Enn er í gildi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 06.10.2008 um tímabundna stöðvun viðskipta með alla fjármálagerninga sem útgefnir eru af Glitni banka hf., Kaupþingi banka hf., Landsbanka Íslands hf., Exista hf., Straumi fjárfestingarbanka hf. og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. Ákvörðunin var tekin þar sem það er mat Fjármálaeftirlitsins að jafnræði fjárfesta verði ekki tryggt með öðrum hætti. Af því leiðir að Glitnir Sjóðir hf. kemst ekki hjá því að fresta innlausnum í eftirfarandi sjóðum: Sjóður 1 - skuldabréf Sjóður 10 - úrval innl. hlbr. Sjóður 11 - fyrirtækjabréf Sjóður 6 - aðallistinn Sjóður 9 - peningamarkaðsbréf Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með fjármálagerninga félaganna. Frestun innlausnar ofangreindra sjóða er gerð á grundvelli 2. mgr. 27. gr. og 2. mgr. 53. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.