Uppgjör Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2008 verður birt þann 26. nóvember næstkomandi. Efnt verður til kynningarfundar sama dag og verður tilkynnt síðar um fundarstað og fundartíma. Vakin er athygli á að í uppgjörstilkynningu annars ársfjórðungs þessa árs var gert ráð fyrir að uppgjör þriðja ársfjórðungs yrði birt 5. nóvember. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen, forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs Sími: 858 6707 Netfang: georg.andersen@straumur.net
Breytt dagsetning fyrir uppgjör þriðja ársfjórðungs: 26. nóvember
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.