06.11.2008 Sú þróun sem átt hefur sér stað á alþjóðlegum fjármálamörkuðum eftir 30. júní sl. hefur haft mikil áhrif á fjármálastofnanir og fyrirtæki, þar á meðal Straum-Burðarás Fjárfestingabanka hf. (Straumur). Straumur hefur lagt mikla áherslu á að upplýsa hluthafa og lánveitendur um áhrif þessarar þróunar á bankann. Straumur hefur á síðustu mánuðum haldið áfram að auka hlutfall tekna vegna þjónustu við viðskiptavini og draga úr áhættu í efnahagsreikningi, að því leyti sem mögulegt er. Efnahagsreikningur bankans og eigið fé hefur óhjákvæmilega rýrnað vegna lækkunar á verði eigna (bæði fjáreigna og útlána). Þann 30. júní sl. var hlutfall þóknunartekna vegna starfsemi bankans á Íslandi um 26% og hlutfall eigna bankans á Íslandi 22%. Markaðsaðstæður hérlendis hafa hins vegar haft áhrif á afkomu bankans vegna starfsemi hans á Íslandi." Straumur hefur metið núverandi eignastöðu í kjölfar atburða á innlendum og erlendum mörkuðum, að teknu tilliti til hagnaðar eða taps af veltufjáreignum, fjáreignum tilgreindum á gangvirði og virðisrýrnunar. Bankinn áætlar að þann 31. október sl. hafi eiginfjárhlutfall bankans verið yfir 20% og eiginfjárþáttur A yfir 18%. Straumur hafði nokkrar eigna-, skulda- og afleiðustöður gagnvart Landsbanka Íslands hf., Glitni banka hf. og Kaupþing banka hf., þegar rekstur þeirra voru teknir yfir af Fjármálaeftirlitinu. Straumur telur að eftir uppgjör á þessum samningum séu samanlögð áhrif á eignastöðu Straums jákvæð. Uppgjör reikninga Straums er í evrum og ver bankinn eignir sínar í evrum. Hins vegar á bankinn töluvert af eignum og skuldum í öðrum gjaldmiðlum, þar á meðal íslenskum krónum. Bankinn hefur þó ekki getað sinnt hefðbundnum gjaldeyrisvörnum undanfarna mánuði vegna lokunar gjaldeyrismarkaðar á Íslandi. Á þessum tíma hefur bankinn neyðst til stöðutöku í mismunandi myntum. Þegar markaðsaðstæður leyfa mun bankinn taka upp fyrri aðferðir við gjaldeyrisvarnir. Með hliðsjón af framangreindu getur Straumur staðfest að veiking íslensku krónunnar hefur ekki haft veruleg áhrif á eignastöðu bankans. Straumur hefur takmarkaða endurfjármögnunarþörf þar sem skuldsetning bankans er hlutfallslega lág, en þann 30. júní sl. voru útlán sem hlutfall af heildareignum 31%. Langtíma endurfjármögnunarþörf bankans næstu 12 mánuði er undir 400 milljónum evra. Markaðsaðstæður á Íslandi undanfarinn mánuð hafa samt sem áður haft áhrif á lausafjárstöðu bankans. Straumur hefur stýrt lausafjárstöðu sinni vandlega sl. mánuð og hefur hún jafnt og þétt styrkst. Síðustu mánuði hefur bankinn staðið við allar sínar skuldbindingar og mun gera það framvegis. Síðustu atburðir á Íslandi hafa hins vegar orðið til þess að lánshæfismat bankans hefur verið lækkað af lánshæfisfyrirtækinu Fitch Ratings, í langtímaeinkunnina "B". Straumur hefur á þessu tímabili haldið góðu sambandi við lánardrottna bankans og unnið að því að tryggja lausafjárstöðu hans. Í framhaldi þeirra atburða sem lýst er hér að ofan hefur Straumur unnið að því að minnka efnahagsreikning og áhættu bankans, vernda eigið fé og bæta lausafjárstöðu. Þann 31. október sl. voru heildareignir Straums undir 5 milljörðum evra og áhættugrunnur bankans undir 4 milljörðum evra. Nú í byrjun nóvember nýtti Straumur tækifæri á markaði til að styrkja tekjuskapandi hluta rekstursins í London með því að ráða nokkra af fyrrverandi starfsmönnum Teathers og kaupa vörumerkið Teathers. Þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður á alþjóðlegum fjármálamarkaði telur stjórn og framkvæmdastjórn bankans að ofangreindar aðgerðir ásamt sterkri eiginfjárstöðu geri bankanum kleift að þróa starfsemi sína í samræmi við stefnu bankans, þ.e. að leggja áherslu á vaxta og þóknunartekjur bankans, dreifa tekjustofnum og draga úr áhættu efnahagsreikningsins. Frekari upplýsingar veitir: Georg Andersen Forstöðumaður Samskipta og Markaðssviðs Sími: +354 858 6707 E-mail: georg@straumur.com
Um stöðu Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf.
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.