Þann 4. nóvember síðastliðinn kvað héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð þar sem hafnað var beiðni Samson eignarhaldsfélags ehf. um framlengingu á greiðslustöðvun félagsins. Í kjölfar úrskurðar héraðsdóms þá hefur stjórn Samson eignarhaldsfélags ehf. tekið ákvörðun um að fara fram á það við héraðsdóm Reykjavíkur að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta.
- Samson eignarhaldsfélag ehf. óskar eftir gjaldþrotaskiptum
| Source: Samson eignarhaldsfélag ehf.