Fréttatilkynning vegna ársreiknings Sorpu b.s. fyrir árið 2008, sem samþykkt var af stjórn samlagsins þann 23. febrúar 2009. Sorpa b.s er byggðasamlag, sem stofnað er í samræmi við ákvæði VII kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 (áður IX kafla laga nr 8/1986) um samvinnu sveitarfélaga við framkvæmd einstakra verkefna. Tilgangur byggðasamlagsins er að annast sorpeyðingu fyrir sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem öll eru stofnaðilar að því. Sveitarfélögin, sem aðild eiga að byggðasamlaginu, bera "in solidum" einfalda ábyrgð á fjárhagsskuldbindingum þess gagnvart kröfuhöfum. Niðurstöður: Hagnaður Sorpu b.s. á árinu 2008 nam 4,2 millj.kr. en var 161,2 millj.kr. árið 2007 Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 250,5 millj.kr. á árinu 2008 en var 307,2 millj.kr. á árinu 2007. Rekstrartekjur samlagsins námu 2.048,6 millj.kr. árið 2008 samanborið við 2.006,2 millj.kr. árið 2007 sem er 2,1% hækkun. Rekstrargjöld, án afskrifta og fjármagnsliða voru 1.798,2 millj.kr. samanborið við 1.699,1 millj.kr. 2007 og er hækkunin tæp 6%. Heildareignir samlagsins 31. desember 2008 námu 1.885,9 millj.kr. og heildarskuldir 778,8 millj.kr. Eigið fé 31. desember 2008 var 1.107 millj.kr. og hafði aukist um 8,4 millj.kr. frá því í upphafi árs. Eiginfjárhlutfall var tæp 59% en var í lok síðasta árs rúmlega 60%. Handbært fé frá rekstri á árinu 2008 var 383,9 millj.kr. en var árið 2007 262,8 millj.kr. Veltufjárhlutfall í árslok 2008 var 1,2 og handbært fé nam 290,5 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar ársins 2008 námu 216,9 millj.kr. og fjármögnunarhreyfingar tæpar 137,4 millj.kr. Reikningsskilaaðferðir: Ársreikningur Sorpu b.s. er gerður í meginatriðum eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.
- Ársreikningur 2008
| Source: Sorpa