Afkoma HB Granda hf. árið 2008 • Rekstrartekjur ársins voru 124 m€, en voru 141 m€ árið áður • EBITDA var 30 m€ (24 %) en var 31 m€ (22 %) árið 2007 • Hagnaður ársins var 16 m€, en var 20 m€ árið áður Uppgjör í evrum HB Grandi birtir nú uppgjör sitt í fyrsta sinn í evrum. Slíkt uppgjör gefur betri mynd af afkomu og stöðu félagsins en uppgjör í íslenskum krónum, þar sem stærstur hluti tekna er í evrum, sem og stór hluti gjalda. Þá hefur evran mest vægi í samsetningu eigna og skulda og þar með eigin fé. Til samanburðar hefur ársreikningur ársins 2007 verið umreiknaður í evrur miðað við lokagengi þess árs. Rekstur ársins 2008 Rekstrartekjur HB Granda hf. árið 2008 námu 124 m€, samanborið við 141 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 30 m€ eða 24% af rekstrartekjum, en var 31 m€ eða 22% árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 14 m€, en voru jákvæð um 6 m€ árið áður. Inni í þessum lið fyrir árið 2008 telst gengismunur lána, sem er nú mun minni stærð en áður, þar sem hann ræðst eingöngu af innbyrðis breytingum á gengi erlendra gjaldmiðla, en ekki af flökti á gengi íslensku krónunnar. Fyrir árið 2007 er hins vegar færður allur gengishagnaður vegna styrkingar krónunnar, umreiknaður yfir í evrur. Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 1 m€. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 5 m€, en hagnaður ársins var 16 m€. Þessu veldur að skattframtal er gert í íslenskum krónum og verður þar umtalsvert gengistap vegna erlendra skulda, sem veldur skattafrádrætti. Að auki er 3 m€ færðar til tekna vegna lækkunar á skatthlutfalli úr 18% í 15%. Hagnaður ársins 2007 var 20 m€. Við samanburð á milli ára ber að hafa í huga að í byrjun árs 2007 varð nettóhagnaður af sölu skipa að fjárhæð 7 m€. Rekstur síðari helmings ársins 2008 Rekstrartekjur HB Granda hf. á síðari helmingi ársins 2008 námu 61 m€, samanborið við 51 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 19 m€ eða 30% af rekstrartekjum, en var 4 m€ eða 7% árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 9 m€, en um 12 m€ árið áður. Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 1 m€, en óveruleg árið áður. Hagnaður tímabilsins nam 5 m€, en á sama tíma árið áður varð 11 m€ tap. Botnfiskskip félagsins veiddu mun meiri karfa en árið áður, en frystitogararnir veiddu minni þorsk og ýsu. Uppsjávarskipin veiddu mun meiri norsk-íslenska síld, en minni kolmunna. Þá varð mikil búbót af umtalsverðum makrílveiðum, sem voru litlar árið áður. Síldveiðar voru svipaðar á milli ára, en mun minna nýttist til manneldisvinnslu en árið áður. Afurðaverð í erlendri mynt lækkaði heldur á milli ára, þó mismikið eftir fisktegundum og mörkuðum. Efnahagur Heildareignir félagsins námu 296 m€ í lok árs 2008. Þar af voru fastafjármunir 254 m€ og veltufjármunir 42 m€. Í árslok nam eigið fé 125 m€. Eiginfjárhlutfall var 42%, en var 35% í lok árs 2007. Heildarskuldir félagsins voru í árslok 171 m€. Framvirkir gjaldmiðlasamningar Viðskiptabankar félagsins hafa krafið félagið um uppgjör á framvirkum gjaldmiðlasamningum að fjárhæð 3,0 m€ og er sú fjárhæð til varúðar færð til skuldar á reikningum félagsins um áramót. Félagið telur þó að m.v. rétt uppgjör sé fjárhæðin 1,6 m€ og hefur þegar greitt hluta hennar í samræmi við það. Skipastóll og afli Í skipastól HB Granda hf. eru 5 frystitogarar, 3 ísfisktogarar og 4 uppsjávarfiskveiðiskip. Á árinu 2008 var afli skipa félagsins 47 þúsund tonn af botnfiski og 126 þúsund tonn af uppsjávarfiski. Aðalfundur Aðalfundur HB Granda verður haldinn föstudaginn 3. apríl 2009 í matsal félagsins við Norðurgarð í Reykjavík og hefst klukkan 17:00. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 8% arður. Fjárhagsdagatal Aðalfundur 3. apríl 2009 Birting ársskýrslu 3. apríl 2009 Arðgreiðsludagur 27. apríl 2009 Hálfsársuppgjör 24.-28. ágúst 2009 Ársuppgjör 2009 8. - 12. mars 2010