Leiðrétting: Í fyrri tilkynningu slæddist með prentvilla þar sem talað var um Sparisjóðinn í Keflavík í stað Sparisjóðs Bolungarvíkur. Stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur hefur óskað eftir því við fjármálaráðherra að nýtt verði heimild laga nr. 125/2008 og sparisjóðnum lagt til nýtt eigið fé sem nemur 20% af bókfærðu eigin fé eins og það var í árslok 2007. Samkvæmt ársreikningi Sparisjóðs Bolungarvíkur nam eigið fé í árslok 2007 alls kr. 2.006.167.000,-. Miðað við ákvæði áður nefndra laga og reglna er því heimilt að leggja sparisjóðnum til fjárhæð sem nemur kr. 401.233.000,-. Sparisjóður Bolungarvíkur ráðgerir að birta ársuppgjör fyrir árið 2008 í viku 14.
Leiðrétting - Umsókn Sparisjóðs Bolungarvíkur um eiginfjárframlag úr ríkissjóði - Frétt birt 2009-03-20 17:18:53
| Source: Sparisjóður Bolungarvíkur