Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2008. Í lok ársins 2008 annaðist Landsvaki hf. rekstur 26 sjóða um sameiginega fjárfestingu samanborið við 29 sjóði í árslok 2007 en á árinu voru stofnaðir 2 nýjir sjóðir og 5 sjóðum var slitið. Í árslok nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 75,5 milljörðum króna samanborið við 251,4 milljarða í árslok 2007. Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi. • Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. • Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2008, efnahag þess 31. desember 2008 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna á árinu 2008, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur. Þær aðstæður sem sköpuðust á íslenskum fjármálamarkaðia við fall bankanna í byrjun október 2008 höfðu mikil áhrif á rekstrarumhverfi félagsins og ollu mikilli rýrnun á eignum einstakra sjóða í rekstri Landsvaka. Tap varð á rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 274 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi félagsins. Eigið fé Landsvaka í árslok nam 142 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 21,5% en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0% samkvæmt lögum. Landsvaki hf. var samskattaður með Landsbanka Íslands hf. við álagningu þinggjalda á árinu 2008. Samkvæmt lögum um tekjukskatt bera samsköttuð félög sameiginlega ábyrgð á álögðum tekjuskatti. Í þessu fólst að ábyrgð Landsvaka hf. vegna álagningar gat orðið allt að 4,6 milljarðar króna. Félagið hefur verið í viðræðum við skattayfirvöld vegna málsins og hefur náðst samkomulag um að félagið inni af hendi greiðslu sem nemur 460 milljónum króna og losni jafnframt undan frekari skuldbindingum vegna ábyrgðarinnar. Sú greiðsla hefur þegar verið innt af hendi og færð til gjalda í rekstrarreikningi félagsins fyrir árið 2008. Í framhaldinu hefur embætti Tollstjóra staðfest að Landsvaki hf. beri ekki frekari ábyrgð á greiðslu vegna þessa. Jafnframt hefur NBI hf. samþykkt að leggja félaginu til nýtt eigið fé að fjárhæð 150 milljónum króna til að tryggja að félagið uppfylli áfram ákvæði laga um eigið fé fjármálafyrirtækja. Hefur jafnframt verið tekið tillit til þeirrar hlutafjáraukningar í ársreikningi félagsins fyrir árið 2008. Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7209.
- Ársreikningur 2008
| Source: Landsvaki