Marel Food Systems boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem kynnt verður sex mánaða uppgjör félagsins. Theo Hoen, forstjóri, Erik Kaman fjármálastjóri og Sigsteinn Grétarsson forstjóri Marel ehf. munu kynna uppgjörið. Kynningarfundurinn verður haldinn föstudaginn 7. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ. Morgunverður er frá kl. 8:00.