Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á síðasta reikningsári. Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2009 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 24. ágúst 2009. Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. Tap félagsins á fyrrihluta ársins 2009 var 17.031 þús. kr. og í lok þess var eigið fé neikvætt um sem nam 40.469 þús. kr. samkvæmt árshlutareikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Á hluthafafundi í félaginu var hlutafé aukið um 38 milljónir. Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með fyrirvara. Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 516,8 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna. Ásgeir Valdimarsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.
- 6 mánaða uppgjör 2009
| Source: Jeratún ehf.