Hluthafafundur Hf. Eimskipafélags Íslands. 8. september 2009 Stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands hefur ákveðið að boða til hluthafafundar og verður haldinn þriðjudaginn 8. september 2009 í á skrifstofum félagsins að Korngörðum 2 Reykjavík og hefst fundurinn kl.9:00. Á dagskrá fundarins verður: 1. Tillaga stjórnar um breytingu á 1. gr. samþykkta félagsins þess efnis að nafni þess verði breytt. 2. Staðfesting á samningum vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins. Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir fundinn. Fundargögn verða afhent á fundardag frá kl. 8.30 á fundarstað. Reykjavík 31. ágúst 2009. Stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands.
Hluthafafundur Hf. Eimskipafélags Íslands
| Source: Hf. Eimskipafélag Íslands