Reykjavík, 8. febrúar, 2010 — NASDAQ OMX Group, Inc. (NASDAQ:NDAQ) tilkynnir innleiðing viðskiptakerfisins INET tókst vel í dag á öllum mörkuðum á Norðurlöndunum (Kaupmannahöfn, Helsinki, Ísland og Stokkhólm) og á Eystrasaltsríkjunum (Riga, Tallinn og Vilnius). Viðskiptakerfið INET er nú þegar notað á NASDAQ markaðnum í Bandaríkjunum og á markaðstorginu NASDAQ OMX Europe í London. Frá og með deginum verður viðskiptakerfið notað á öllum mörkuðum NASDAQ OMX á alþjóðavísu. Þórður Friðjónsson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland sagði, “Innleiðing INET er stórviðburður í sögu kauphallarstarfsemi á Norðurlöndunum. Með innleiðingunni er sama viðskiptakerfi í notkun í öllum kauphöllum NASDAQ OMX. Í þessu felast gríðarleg tækifæri til framþróunar og sóknar á alþjóðavettvangi. Það er ómetanlegt fyrir Ísland að vera hluti af þessari þróun í því endurreisnarstarfi sem í hönd fer.”. Anna Ewing, yfirmaður tæknimála hjá NASDAQ OMX sagði, “Þegar við sameinuðumst á sínum tíma var eitt af okkar aðalmarkmiðum að allar kauphallirnar okkar notuðu sama viðskiptakerfi og nú getum við sannanlega nýtt okkur þá hagkvæmni sem stærð okkar býður okkur. Færsla sjö kauphalla yfir í eitt viðskiptakerfi er einstakt afrek og við erum hæstánægð með að geta nú boðið þessa leiðandi tækni á mörkuðum okkar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.” INET viðskiptakerfið hjá NASDAQ OMX er skilvirkasta og sveigjanlegasta viðskiptakerfi sem til er, býður upp á míkrósekúndna hraða, hámarksáreiðanleika og getu. INET afkastar einni milljón skilaboða á sekúndu á undir 250 míkrósekúndum að meðaltali sem gerir það að hraðasta kauphallarkerfi í heiminum. INET er einnig uppistaða GENIUM, vöruframboði NASDAQ OMX í kauphallartækni. - # - Um NASDAQ OMX NASDAQ OMX Group, Inc. er stærsta kauphallarfyrirtæki heims. Það veitir viðskipta- og kauphallarþjónustu sem og almenna fyrirtækjaþjónustu í sex heimsálfum og með yfir 3.700 félög í viðskiptum er það í fararbroddi stærstu markaða heims. NASDAQ OMX býður félögum um allan heim upp á fjölda fjármögnunarkosta, þar á meðal U.S. listings market, NASDAQ OMX Nordic, ásamt First North, og 144A PORTAL Market. Félagið býður upp á viðskipti með fjölda eignaflokka, svo sem hlutabréf, afleiður, skuldabréf, hrávörur, samsettar vörur og kauphallarsjóði. NASDAQ OMX upplýsingatækni styður starfsemi rúmlega 70 kauphalla, greiðslustofnana og verðbréfamiðstöðva í yfir 50 löndum. NASDAQ OMX Nordic og NASDAQ OMX Baltic eru ekki lögaðilar en hugtakið lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq OMX kauphallanna í Helsinki, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Íslandi, Tallinn, Ríga og Vilníus. Nánari upplýsingar um NASDAQ OMX er að finna á slóðinni www.nasdaqomx.com. NASDAQ OMX er á Facebook (http://www.facebook.com/pages/NASDAQ-OMX/108167527653) og á Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja. NASDAQ OMX fjölmiðlatengill á Íslandi: Kristín Jóhannsdóttir +354 525 2844 kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com NDAQG
NASDAQ OMX hleypir af stokkunum viðskiptakerfinu INET á öllum sjö mörkuðum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum
| Source: Nasdaq Nordic