Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á LSS150224. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Eftirfarandi bönkum og verðbréfafyrirtækjum hefur verið boðið að gera tilboð: Arion banki, H.F. Verðbréf, Íslandsbanki, Íslensk verðbréf, Jöklar Verðbréf, MP Banki, NBI, Saga Capital Fjárfestingarbanki og Virðing. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali: